Search
Close this search box.

Hópuppsagnir!

Deildu 

Það er alltaf erfitt að heyra þegar hópuppsagnir verða í okkar litla samfélagi. Nú síðast var öllu starfsfólki Ísfisks á Akranesi sagt upp störfum. Þær uppsagnir bætast svo ofan á uppsagnir fjármálafyrirtækja í lok síðasta mánaðar ásamt uppsögnum hjá Íslandspósti og Icelandair.

Ég var viðstödd þegar fiskvinnslan á Akranesi hóf rekstur fyrir rúmum tveimur árum þar sem bjartsýni ríkti með framhaldið og eru miklar vonir bundnar við að hægt verði að koma vinnslu þar aftur í gang.

Hópuppsagnir eru núna orðnar fleiri á þessu ári en á öllu síðasta ári og samkvæmt könnun sem Samtök atvinnulífsins létu framkvæma er það mat stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins að starfsmönnum þeirra gæti fækkað um 0,5 prósent næsta hálfa árið. Flestir þeirra sem misstu vinnuna á Akranesi í byrjun vikunnar höfðu áður misst vinnuna þegar HB Grandi hætti allri starfsemi í plássinu fyrir tveimur árum síðan.

Þegar þetta er allt tekið saman þá er útlitið ekki gott. En stjórnendur hjá Ísfiski vonast enn til að uppsagnirnar geti gengið til baka og það er einnig von mín að það gangi eftir. Til að tryggja megi byggð alls staðar á landinu verður að tryggja atvinnu alls staðar á landinu. Akranes er steinsnar frá höfuðborginni og margir sækja atvinnu þangað, en það hlýtur að vera markmiðið að fólk geti unnið í sinni heimabyggð. Þá skiptir ekki máli hvort um er að ræða starfsmenn fjármálafyrirtækja eða í fiskvinnslu.

Það eru þó jákvæð merki annars staðar frá. Hið opinbera vinnur gegn niðursveiflunni með því auka fjárfestingar, þær hafa ekki verið hærri sem hlutfall af verðmætasköpun í landinu frá því fyrir hrun. Þá mun tryggingagjaldið lækka um áramót sem og tekjuskattur einstaklinga. Á miðvikudagsmorgun lækkaði svo Seðlabankinn stýrivexti í þriðja sinn á árinu og hafa þeir aldrei verið lægri. Þessi atriði auk annarra aðgerða munu leiða til þess að þessi tímabundni samdráttur mun vonandi verða stuttur.

Þó eru enn margir óvissuþættir. Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína gæti leitt til samdráttar í helstu viðskiptalöndum Íslands, útganga Breta úr Evrópusambandinu gæti haft slæmar afleiðingar hér á landi sem og áframhaldandi óvissa er með loðnuveiðar á næsta ári. Góðar fregnir eru hins vegar víða, á næsta ári gæti fiskeldi skilað álíka miklum tekjum og loðnuvertíð í þjóðarbúið. Þó að samdráttur hafi verið í komum ferðamanna þá hefur nýting á hótelum ekki versnað frá því í fyrra auk þess sem hver ferðamaður skilur eftir fleiri krónur árið 2019 en hann gerði 2018. Efnahagsleg staða landsins er sterk og einstaklingar, fyrirtæki og þjóðarbúið hafa verið að greiða niður skuldir.

Það er því full ástæða til að vera bjartsýn á fjölbreytt tækifæri á vinnumarkaði þó uppsagnir slái hvern einstakling hart sem fyrir þeim verður og því brýnt að styðja það fólk með vinnumarkaðsaðgerðum eins og endurmenntun til að takast á við örar breytingar á vinnumarkaði.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, höfundur er þingmaður Vinstri grænna og formaður atvinnuveganefndar Alþingis.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search