Search
Close this search box.

Horfum til heildar­hags­muna

Deildu 

Það hvílir á stjórnvöldum hverju sinni að tryggja öryggi og heilsu borgara sinna. Jafnframt að tryggja réttindi borgaranna. Við viljum tryggja heilsu og mannréttindi fólks. Það er eðlilegt að fólk láti reyna á þær sóttvarnir sem stjórnvöld setja hverju sinni. Einkum og sér í lagi þegar þær eru íþyngjandi.

Það er þó mikilvægt að hafa í huga að baki sóttvörnum liggur sú grundvallarhugsun að tryggja heilsu fólks. Aðgerðirnar snúast ekki um neitt annað en sóttvarnir. Sóttvarnir og sóttvarnarlög eru ekki tæki í höndum yfirvalda til að beita almenning harðræði og það er ekki ósk neins ráðherra sem ég hef rekist á að þurfa að takmarka réttindi almennings. Þvert á móti eru heimildir í lögunum til að vernda almenning og tryggja að stjórnvöld hafi þau tæki sem þarf til að vernda líf og heilsu. Samlíkingar á borð við að sóttkví sé eins og refsivist og um frelsissviptingu sé að ræða, jafnvel mannréttindabrot, eru í mínum huga fráleitar.

Almenningur hefur rétt á því að vera eins öruggur frá smiti og kostur er og það er stjórnvalda að tryggja það. Þegar heimsfaraldur geisar þá birtist það í sóttvarnaaðgerðum sem eru misíþyngjandi. Þær geta verið frá tveggja metra reglu og yfir í margra daga einangrun ef fólk greinist smitað.

Undanfarna daga hefur farið fram mikil umræða um sóttvarnir. Þar hefur frelsi fólks til að ferðast og komast um hindrunarlaust verið hampað mikið á kostnað frelsis almennings til að forðast smit. Gleymum því ekki að um heimasóttkví gilda nokkuð strangar reglur og það varðar sektum að virða ekki sóttkví. Ekki vegna þess að yfirvöld vilja sekt almenning, heldur vegna þess að við erum að reyna að stöðva heimsfaraldur.

Sóttvarnalæknir hefur frá upphafi faraldursins hrósað almenningi fyrir samstöðuna, og bent á leiðir til að lágmarka smithættu, sem við höfum flest farið eftir. Ráðleggingar sóttvarnalæknis til yfirvalda hafa byggst á bestu fáanlegu þekkingu á hverjum tíma, með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Því er furðulegt þegar farið er að tala um að sóttvarnir og sótvarnalög séu tæki í höndum yfirvalda til að beita almenning harðræði. Það gæti ekki verið meira fjarri lagi, enda held ég að öll hlutaðeigandi bíði spennt eftir þeim degi sem hægt er að aflétta öllum hömlum innanlands.

Í faraldrinum höfum við borið gæfu til þess sem samfélag að vera samstíga og horfa til heildarhagsmuna. Bólusetningar halda áfram og líklegt að bróðurparturinn verði bólusettur fyrir mitt sumar. Höldum þetta út á endasprettinum. Þannig komumst við öll saman í mark og tryggjum öryggi allra landsmanna.

Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður VG.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search