EN
PO
Search
Close this search box.

Hvalveiðar þurfa að vera í samræmi við lög

Deildu 

Matvælaráðuneytið hefur skilað minnisblaði til atvinnuveganefndar Alþingis í framhaldi opins fundar matvælaráðherra með nefndinni sem haldinn var 23. júní sl. Á fundinum gerði ráðherra grein fyrir ákvörðun sinni um tímabundna stöðvun á veiðum langreyða. Ráðherra setti 20. júní sl. bráðabirgðaákvæði við reglugerð um að hvalveiðar hefjist ekki fyrr en 1. september á þessu ári.

Í minnisblaðinu er farið yfir forsendur ákvörðunarinnar og kemur meðal annars fram að ákvörðunin sé tekin á skýrum lagagrundvelli og byggð á málefnalegum sjónarmiðum um dýravelferð. Til grundvallar liggi umfangsmikil og ítarleg gögn um velferð dýra við veiðar á langreyðum ásamt mati sérfræðinga og ráðuneytisins á þeim.

Tilefni bráðabirgðaákvæðisins er afdráttarlaus niðurstaða fagráðs um velferð dýra. Í áliti fagráðsins kemur fram að núverandi veiðiaðferðir á langreyðum uppfylli ekki kröfur um velferð dýra.

Í minnisblaðinu til atvinnuveganefndar er að auki lýst aðdraganda ákvörðunarinnar og greint frá þeirri yfirgripsmiklu úttekt sem gerð hefur verið á veiðunum á síðastliðnu ári. Að auki segir að ljóst sé að á öllum stigum hafi verið þess gætt að ganga ekki harðar fram en nauðsyn bæri til hverju sinni. Í minnisblaðinu segir jafnframt að ráðherra hafi ekki heimild til að leyfa starfsemi sem er í andstöðu við lög.

Minnisblað til atvinnuveganefndar má nálgast hér.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search