PO
EN

Hvers virði er líf kvenna?

Deildu 

Í gær rak á fjörur mínar fréttir af tveimur harmsögum úr íslenskum samtíma, atvikum sem urðu að ákærumálum sem rötuðu fyrir dómsstóla. Í öðru þeirra var maður stunginn tvisvar með hnífi með þeim afleiðingum að hann lést. Í hinu málinu var maður stunginn tvisvar með hnífi og lifði af. Í báðum málunum var dæmt.

Maðurinn sem stakk manninn sem lést var sýknaður vegna þess að um nauðvörn var að ræða. Eins og segir í frétt um málið: „Verður ekki önnur ályktum dregin af gögnummálsins en aðum ofsafengna oglífshættulega árás hafiverið að ræða ogað hending ein hafi ráðiðað ákærði hlautekki lífshættulega áverkaaf.“

Konan sem stakk manninn sem lifði af var dæmd til skilorðsbundinnar fangelsisvistar og hárra sektar- og bótagreiðslna. Hún stakk líka í nauðvörn, mann sem áður hafði beitt hana hrottalegu ofbeldi. Hún óttaðist líka um líf sitt. Maðurinn með áverkana hringdi sjálfur í lögregluna eftir að hafa „skorið samfestingutan af ákærðu,rifið í háriðá henni, henthenni í gólfiðog sparkað í hana. Hún hafi verið virkilega hrædd og talið lífi sínu ógnað“ eins og segir í dómnum.Áverkaskoðun staðfestir framburð konunnar, hún var öll blá og marin eftir barsmíðar mannsins.

Það er greinilega ekki sama hver grípur til nauðvarnar í íslensku dómskerfi. Hvort þú ert karlmaður sem þarft að verjast árás frá öðrum karlmanni eða hvort þú ert kona sem þarft að verjast árás frá stærri og sterkari karlmanni, sem verður reiður vegna þess að þú vilt ekki stunda kynlíf með honum sem þar að auki hefur meitt þig áður.

Við vitum að konur eru á heimsvísu fimm sinnum líklegri til að vera myrtar af maka en karlar. Við vitum að mörg tilfelli heimilisofbeldis eru tilkynnt til lögreglu á degi hverjum og þar eru karlar gerendur í yfirgnæfandi meirihluta tilfella. Við vitum að 42% kvenna hér á landi hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi. Við vitum að fjölda kvenna er hótað ofbeldi og lífláti daglega.

Nauðvörn er að óttast um líf sitt og verjast í samræmi við það. Í sumum tilfellum veldur það dauða, öðrum ekki. Ef aflsmunir, ítrekuð saga um ofbeldi og lítið barn sem sefur í sömu íbúð eru ekki talin nægileg ástæða til að grípa til nauðvarnar þá er skekkjan alvarleg. Við sem samfélag verðum að fara að gera upp við okkur hvort við viljum í rauninni hafa það þannig að líf kvenna sé svona miklu minna virði en líf karlmanna.

Höfundur skipar þriðja sæti á lista VG í Reykjavík norður og situr í stjórn Hagsmunasamtaka brotaþola.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search