Search
Close this search box.

Ísland mun uppfylla skuldbindingar sínar í loftslagsmálum

Deildu 

Ígær kom út ný útgáfa Aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum, sem sýnir að Ísland mun uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Stjórnvöld setja samt markið enn hærra.

Stefna ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur er skýr í loftslagsmálum. Stefnt er að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda um 40% árið 2030 í samstarfi við Noreg og ESB, og kolefnishlutleysi árið 2040.

Með þeim aðgerðum sem við höfum ráðist í og hyggjumst ráðast í, munum við ná mun meiri árangri en alþjóðlegar skuldbindingar samkvæmt Parísarsamkomulaginu krefjast af okkur. Því ber svo sannarlega að fagna. Samkvæmt áætluninni mun samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030 verða 35%, miðað við viðmiðunarárið 2005, en skuldbindingar okkar kveða á um 29% samdrátt. Til viðbótar við þetta eru aðgerðir sem enn eru í mótun taldar geta skilað 5-11%, eða samtals 40-46% samdrætti. Ísland hefur snúið blaðinu við.

Að baki þessari nýju útgáfu áætlunarinnar liggja ítarlegir útreikningar á ávinningi allra þeirra aðgerða sem unnt var að meta. Áætlunin samanstendur af 48 aðgerðum, en rúmur helmingur þeirra er þegar kominn til framkvæmda. Fimmtán nýjar aðgerðir hafa bæst við frá fyrri útgáfu áætlunarinnar og má þar til dæmis nefna aðgerðir til þess að auka innlenda grænmetisframleiðslu, fjölga vistvænum bílaleigubílum og styðja við orkuskipti í þungaflutningum.

Við munum halda ótrauð áfram að tryggja þau umskipti sem nauðsynleg eru í samfélaginu til að sporna gegn áhrifum loftslagsbreytinga og munum meðal annars greina áhrif áætlunarinnar á mismunandi tekjuhópa. Fjöldi tækifæra felst í fjárfestingu í grænum innviðum og grænni nýsköpun. Orkuskipti á öllum sviðum samfélagsins, minni sóun og frekari kolefnisbinding með landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis geta leitt til mikils ávinnings fyrir samfélagið. Hvort sem það er í formi grænna starfa, græns vaxtar eða lífvænlegri heims til lengri tíma litið.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search