Search
Close this search box.

Jafnrétti á öllum sviðum samfélagsins

Deildu 

Til að knýja fram breytingar í samfélaginu þarf að breyta ýmsum hugmyndum, hefðum og venjum. Eitt af því er hugarfar þeirra sem starfa við gerð fjárlaga og fjármálaáætlana. Eitt af þeim verkefnum sem hægt er að nýta í þeirri vegferð er kynjuð fjárlagagerð eins og ríkisstjórnin hefur gert, til að mynda með fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð.

Nú styttist í að fram komi síðasta fjármálaáætlun kjörtímabilsins og í síðustu viku var kynnt stöðuskýrsla ríkisstjórnarinnar þar sem kynjasjónarmið á flestum þeim málefnasviðum sem fjármálaáætlun tekur til hafa verið kortlögð. Sú mynd sem dregin er fram í skýrslunni sýnir fram á að staða kynjanna er enn ójöfn á ýmsum sviðum hins opinbera. Hún sýnir einnig fram á muninn á heilsu kynjanna. Þannig lifa konur yfirleitt lengur en karlar en eru líklegri til að lifa við heilsubrest í daglegu lífi.

Slík skýrsla hefur verið tekin saman með reglulegu millibili og hún veitir okkur mikilvæga áminningu um að enn er verk að vinna. Jafna þarf hlut kynjanna á hinum ýmsu sviðum. Það er því sérstakt fagnaðarefni að ríkisstjórnin hafi samþykkt að ráðherrar beiti sér fyrir því að niðurstöður skýrslunnar verði nýttar við stefnumótun. Þannig verði tekið tillit til kynja- og jafnréttissjónarmiða við ákvarðanatöku.

Jafnréttismál voru færð undir forsætisráðuneytið í byrjun árs 2019. Ég tel að það hafi verði heillaskref. Þannig hefur þessum málaflokki, sem er samofinn öllu okkar samfélagi, verið gert hátt undir höfði. Stór skref hafa jafnframt verið stigin í jafnréttismálum á kjörtímabilinu. Til dæmis með nýrri löggjöf um þungunarrof þar sem sjálfsákvörðunarréttur kvenna yfir eigin líkama var lögfestur. Þá er einnig hægt að nefna fæðingarorlofið, sem hefur verið lengt úr níu mánuðum í tólf á tímabilinu, undir forystu Katrínar Jakobsdóttur. Þá hafa réttindi hinsegin fólks verið stórbætt svo við erum áfram leiðandi í þeim málaflokki.

Þetta eru mikilvæg skref og mörg tímabær. Jafnréttismál hafa alltaf verið ein af grunnstoðum Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs og það er greinilegt á þeim breytingum sem gerðar hafa verið á kjörtímabilinu að það skiptir máli hverjir stjórna.

Það er gríðarlega mikilvægt að tekið sé tillit til jafnréttissjónarmiða við alla ákvarðanatöku. Við sjáum of mörg dæmi þess efnis í löndunum í kringum okkur að bakslag getur auðveldlega átt sér stað í þessum efnum. Við þurfum því öll að vera vakandi og standa vörð um jafnrétti á öllum sviðum samfélagsins.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search