Search
Close this search box.

Kató gamli, tíminn og vatnið

Deildu 

Seyðisfjörður er ein margra náttúruperla á langri festi slíkra á Austurlandi. Fyrir fjarðarbotni býr fólk sem á sögu og kyn til að bjarga sér sjálft. Þegar hallaði undan fæti í fiskveiðum og -vinnslu hófu íbúar, hægt en örugglega, að skapa sér ný tækifæri og byggðu á náttúrugæðum Seyðisfjarðar. Þau reyndust frjór jarðvegur til að rækta sjálfa mennskuna. Til urðu Lungahátíð og -skóli, og alls konar sem fólk vill kíkja á, kynna sér og njóta. Yst í firðinum er náttúru- og menningarsetrið Skálanes, líka grasrótarafurð. Heimafólk hefur gert Seyðisfjörð að þekktum áfangastað innanlands og erlendis og Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni, hefur skilað sér þangað.

Norskur innrásarher á íslenskum gæðingum

Blikur eru á lofti. Vellauðugt norskt laxeldisfólk ásælist meira og sýnist með aðstoð íslenskra samstarfsaðila ætla að hefja laxeldi í Seyðisfirði þrátt fyrir andstöðu mikils meirihluta íbúa. Kallast það ekki Græðgi? Samtímis veitir Ferðamálastofa hæsta styrk ársins, 157,6 milljónir, til að byggja glæsilegan hringlaga útsýnispall, Baug Bjólfs í fjallinu Bjólfi við Seyðisfjörð. Þetta til að öll fái notið útsýnis yfir fjörðinn, þar sem eldiskvíarnar verða að óbreyttu í brennidepli. Skyldi þess hafa verið getið í umsókn um styrk til verksins? Er Græðgin rétthærri en fólkið sem hefur gert Seyðisfjörð að því sem hann er og vill efla samfélag sitt enn frekar á sínum forsendum?

Grafa sína gröf! …og annarra?

Um laxeldi við Íslandsstrendur virðist víða sátt í nærsamfélaginu. Það er vel og laxeldi í Berufirði, syðst í Múlaþingi, sýnist t.d. í góðri samfélagslegri sátt. Verði laxeldi hafið í Seyðisfirði, gegn vilja 75% Seyðfirðinga, finnst mér það gróf valdníðsla. Græðgin mun að óbreyttu uppskera vaxandi andstöðu við eldisáform í Seyðisfirði og líka við eldi þar sem nú ríkir um það sátt. Hvað það þýðir fyrir þær byggðir vil ég ekki hugsa til enda en beini því til Græðginnar sjálfrar hvort hún vill halda áfram að grafa sína eigin gröf og um leið kannski slíkra samfélaga. Við, andstæðingar laxeldis í Seyðisfirði, endurtökum okkur að hætti Kató gamla vitandi að þau vinna með okkur tíminn og vatnið, hvers dropar hola steininn. Saman snúum við almenningsálitinu gegn Græðginni.

STÖNDUM ÖLL SAMAN GEGN LAXELDI Í SEYÐISFIRÐI.

Pétur Heimisson, læknir og annar tveggja fulltrúa VG í umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search