Samninganefndir ríkisins og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa náð samkomulagi um gerð kjarasamnings. Verður hann undirritaður innan skamms. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu ríkissáttasemjara. Samninganefndirnar hafa fundað stíft síðustu daga og setið á fundum í Karphúsinu frá því klukkan 13 í dag.

Samningar hjúkrunarfræðinga við ríkið höfðu verið lausir frá því í mars á síðasta ári, en kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara 21. febrúar í ár.