Search
Close this search box.

Kol­efnis­hlut­laus Kópa­vogur

Deildu 

Loftslagsbreytingar af manna völdum eru raunverulegar, og hlýnun jarðar er eitt stærsta vandamál nútímans og framtíðarinnar. Þjóðir heims hafa flestar sammælst um að bregðast við og þar megum við ekki láta okkar eftir liggja.

Kolefnishlutleysi er gríðarmikilvægt

Það er margt sem við getum gert til að tryggja að samfélögin okkar verði kolefnishlutlaus. Þar mega sveitarfélögin ekki sitja hjá. Sem grunneiningar í uppbyggingu samfélagsins gegna þau lykilhlutverki til að markmið eins og þessi náist. Neyslan fer öll fram í sveitarfélögunum og þar er stór hluti ákvarðana teknar. Með því að stilla af innkaup á vöru og þjónustu þannig að alltaf séu valdir umhverfisvænustu kostirnir, annað hvort kolefnishlutlausir eða kolefnisjafnað á móti kaupunum, hjálpum við til við að gera umhverfið betra.

Kópavogur er stór og kolefnishlutleysi hér skiptir máli

Rúmlega 10% íbúa landsins býr í Kópavogi. Með einfaldri nálgun má ætla, að utan stóriðju, verði 10. hvert tonn af koltvísýringi í andrúmslofti, sem Íslendingar eru ábyrgir fyrir, til í Kópavogi. Hér er því til mikils að vinna. Við getum ekki breytt heiminum ein en við getum tekið góðar ákvarðanir sjálf sem á endanum hafa áhrif. Með ákvörðun stórs sveitarfélags um að öll innkaup á voru og þjónustu verði kolefnishlutlaus fyrir lok kjörtímabilsins verður ekki aðeins sett pressa á okkur, heldur munu aðrir fylgja í kjölfarið. Hér skiptir til dæmis miklu máli að við mat á framkvæmdum og í skipulagi sé gætt að þessum þáttum sérstaklega. Framkvæmdaaðilar munu þá þurfa að sýna fram á að þeirra verkáætlanir, tækjanotkun og efnisnotkun sé kolefnishlutlaus, og hvernig þeir ætla að tryggja að svo sé. Bærinn sjálfur mun þurfa að sýna að þau faratæki sem hann notar eða kaupir, þær skrifstofuvörur, matvæli og fleira og fleira sé kolefnishlutlaust, eða að minnsta kosti kolefnisjafna á móti þeirri losun sem þetta skapar. Bærinn getur svo ýtt undir að bæjarbúar og fyrirtæki í bænum geri hið sama, t.d. með því að hjálpa til við uppsetningu rafhleðslustöðva, með fleiri grenndargámum, hjóla og göngustígum og skipulagi þjónustu í nærumhverfi.

Kópavogur fyrirmynd

Kópavogur á að vera fyrirmynd annarra sveitarfélaga þegar kemur að umhverfismálum. Vinstri græn vilja setja metnaðarfull en raunhæf markmið í þeim efnum. Göngum lengra og gerum Kópavog að betra samfélagi fyrir okkur öll.

Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og oddviti Vinstri grænna í Kópavogi.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search