Alþingiskosningar utan kjörfundar fyrir þá sem ekki kjósa á kjördag 25. september, hófust í morgun 13.ágúst, klukkan 8:20 hjá sýslumönnum. Öllum sem eru á kjörskrá, óháð búsetu eða lögheimili, er heimilt að kjósa utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er.
Við minnum fólk á að taka með sér grímur, því farið er eftir gildandi sóttvarnarreglum í einu og öllu á kjörstöðum. Opnað´verður fyrir sérstakar umsóknir fyrir einstaklinga í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19 þann 20. september
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um fyrirkomulag utan kjörfundar Alþingiskosninga í hverju sveitarfélagi á vefsíðum sýslumanna víðsvegar um landið.
- Á höfuðborgarsvæðinu fer kosning fram 13. – 20. ágúst á skrifstofu sýslumannsembættisins að Hlíðasmára 1, frá kl. 8:20-15:00 mánudaga til fimmtudaga og frá kl 8:20-14:00 á föstudögum.
- Frá og með mánudeginum 23. ágúst nk. og fram að kjördag fer atkvæðagreiðslan fram í Smáralind og Kringlunni og þá verður opið alla daga frá kl. 10:00 – 22:00 alla daga vikunnar.