Nú þegar kosningar til sveitarstjórna nálgast og frambjóðendur kynna sig og stefnu sinna framboða er mikilvægt að leggja við hlustir og heyra hvað frambjóðendur eru raunverulega að segja.
Ekkert ákall eftir einkarekstri
Ýmsir flokkar sem bjóða fram í Kópavogi vilja bæta þjónustu og jafnframt lækka skatta. Á mannamáli þýðir það að fólk vill hækka þjónustugjöld, því kostnaður við leikskóla lækkar ekki við að bæta þjónustuna. Ef foreldrar eiga ekki að borga brúsann við bætta þjónustu þarf fjármagn að koma úr bæjarsjóði og til þess þarf tekjur. Vinstri græn vilja að leikskólinn sé gjaldfrjáls og fjármagnaður að fullu af sveitarfélaginu. Það er líklegt að þetta þurfi að gera í skrefum, en leikskólinn verður ekki gjaldfrjáls nema við sem samfélag tökum ákvörðun um að þannig eigi það að vera. Þá vilja sumir flokkarnir að horft verði í meira mæli til einkarekstrar við rekstur leikskóla. Vinstri græn hafna því að lengra verði gengið í að einkavæða grunnþjónustu samfélagsins. Í gegnum tíðina hafa hægri flokkarnir í Kópavogi ítrekað reynt að útvista þjónustu sem Vinstri græn vilja að sveitarfélagið reki. Nægir þar að nefna sundlaugarnar og leikskóla. Það er hvergi ákall meðal notenda þjónustu um að hún verði sett í hendurnar á aðilum sem ætla að hagnast á henni. Í Kópavogi eru góðir leik- og grunnskólar með metnaðarfullu starfi og frábæru starfsfólki. Við eigum að hlúa að því starfi með því að bæta aðstöðu og og kjör starfsfólks.
Heimgreiðslur eru gamaldags hugsun
Annað kunnuglegt stef heyrðist svo í útvarpsþætti um daginn þar sem flestir flokkarnir vildu endurvekja hugmynd frá síðustu öld um heimgreiðslur til foreldra eftir að fæðingarorlofi lýkur. Heimgreiðslu hugmyndin hefur skotið upp kollinum öðru hverju, en jafnan verið bent á vankanta þeirrar hugmyndar. Bent hefur verið á, og reynslan hefur sýnt,að það væru fyrst og fremst konur sem fara inn á heimilin. Heimgreiðslur eru semsagt tæki sem ýtir konum út af vinnumarkaði á kostnað karla. Samfélagið á ekki að nota þessa leið til að leysa leikskólavandann eða brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Við eigum miklu frekar að finna leiðir í samvinnu við ríkið til að taka fyrr á móti börnum í leikskólana, strax að loknu fæðingarorlofi og byrja þá vinnu að lengja fæðingarorlofið í 18 mánuði. Dagforeldrar sem hafa verið valkostur margra eiga að niðurgreiðast á sama hátt og leikskólinn.
Skólinn er hornsteinn velferðar og jöfnuðar í samfélaginu og á að vera það áfram.
Vandi leikskóla verður hvorki leystur með auknum einkarekstri né heimgreiðslum. Hann verður leystur með samfélagslegu átaki um að viðurkenna í raun að leikskólinn sé fyrsta skólastigið, fjármagnað af sveitarfélögunum að fullu, rétt eins og grunnskólinn.
Ólafur Þór Gunnarsson, læknir er oddviti Vinstri grænna í Kópavogi við kosningarnar 14. maí.