Á landsfundi voru samþykktar breytingar á einni grein laga hreyfingarinnar, þ.e. greininni um flokksráð. Um var að ræða viðbætur að mestu leyti en jafnframt ein breyting sem kveður á um að varamenn í flokksráð verða nú 15 í stað 10 áður. Breytingarnar eru hér auðkenndar með skáletri og feitletri.
Greinin er nú uppfærð á viðeigandi stað á vg.is.
VIII. Flokksráð
29. grein
Flokksráð mynda aðalmenn í stjórn, þingmenn og sveitarstjórnarfulltrúar hreyfingarinnar, formenn kjördæmisráða, formenn svæðisfélaga og fulltrúar Ungra vinstri grænna og Eldri vinstri grænna. Í forföllum taka varamenn í viðkomandi trúnaðarstörfum sæti.
Verði breytingar á setu þessara fulltrúa VG þingi, í sveitarstjórnum eða í trúnaðarstörfum innan hreyfingarinnar halda fulltrúar sætum sínum samkvæmt þessari grein fram að næsta reglulega landsfundi.
Auk þess eru 40 flokksráðsfulltrúar og 15 til vara kjörnir sérstaklega á landsfundi. Varamenn í flokksráði taka sæti í forföllum aðalmanna í þeirri röð sem þeir eru kjörnir. Þegar fulltrúi sem kjörinn er samkvæmt þessari málsgrein öðlast jafnframt aðild að flokksráði samkvæmt 1. málsgrein skal varamaður taka sæti. Varaformaður hreyfingarinnar er jafnframt formaður flokksráðs.
Tillögum sem leggja skal fyrir flokksráð skal skila til stjórnar hreyfingarinnar viku fyrir fund. Fundir flokksráðs skulu vera opnir öllum félögum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Almennir félagar skulu hafa málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt.