Search
Close this search box.

Ljóstýran einkavædd

Deildu 

Frá því að raunverulegt þéttbýli hóf að myndast í Reykjavík hefur verið litið svo á götulýsing væri samfélagslegt verkefni – þótt illu heilli sé útlit fyrir að það kunni að vera að breytast nú í ljósi nýjustu fregna. Þegar líða tók á nítjándu öldina urðu umkvartanir yfir því hversu erfitt og varasamt það væri að ferðast um forugar götur bæjarins að kvöldlagi eitt helsta umkvörtunarefnið á borgarafundum. Það þótti því mikið gleðiefni þegar Reykjavíkurbær festi kaup á sjö steinolíuljóskerjum og lét setja upp við helstu umferðargötur haustið 1878. Sérstakur starfsmaður hafði það verk með höndum að ganga á milli ljóskerjanna og tendra þau og slökkva.

Það var öðru fremur krafan um bætta götulýsingu sem lá að baki því þegar Reykjavíkurbær fór fyrst að íhuga að taka rafmagnið í sína þjónustu. Þótt frá upphafi væri gert ráð fyrir því að raforkuna mætti jafnframt selja til heimilislýsingar eða reksturs á hvers kyns vélum, þá var það talin hálfgerð aukageta og strangt til tekið utan verksviðs sveitarfélagsins. Hins vegar var óumdeilt að bænum bæri að lýsa upp göturnar.

Eftir nokkra yfirlegu ákváðu Reykvíkingar í aldarbyrjun að veðja frekar á gasið og Gasstöð Reykjavíkur hóf göngu sína árið 1910 þegar kveikt var á 207 ljóskerjum sem dreift var um fjórtán af rétt tæplega sextán kílómetra gatnakerfi bæjarins. Var þá haft á orði að Reykjavík væri uppljómuð borg.

Rúmum áratug síðar kom Rafmagnsveita Reykjavíkur til sögunnar og var hennar fyrsta verk að yfirtaka götulýsinguna, þar sem ýmusum gömlu gasljósastauranna var breytt í rafmagnsljósastaura. Upp frá því var það sérstakt metnaðarmál Rafmagnsveitunnar og síðar Orkuveitunnar og Orku náttúrunnar, að standa sem best að götulýsingunni í höfuðstaðnum. Fyrirtækin voru dugleg við að rifja upp söguna, bera saman breytinguna í ljósmagni á hvern íbúa o.s.frv. Rík meðvitund var fyrir hendi um mikilvægi þessa hlutverks. Ljósastaurarnir sjálfir hafa þó talist eign Reykjavíkurborgar.

Í ljósi þessarar sögu eru það vonbrigði að sjá Orku náttúrunnar, sem er orkufyrirtæki í samfélagslegri eigu Reykjavíkur, Akraness og Borgarbyggðar, auglýsa til sölu götulýsingarþjónustu sína. Þetta er til marks um metnaðarleysi af hálfu eigenda fyrirtækisins og bendir til að fólk hafi misst sjónar á tilgangi þess og grunngildum. Með því að selja þjónustudeild sem þessa til einkaaðila er með ósvífnum hætti verið að einkavæða hluta af undirstöðuþjónustu samfélagsins. Í þessu tilviki er um að ræða starfsemi sem eðli sinnar vegna er einokunarstarfsemi og á alls ekki heima á markaði. Vinstri græn í borginni hafna því alfarið að slíkum pilsfaldarkapítalisma sé skotið inn bakdyramegin og við teljum að meginþorri borgarbúa sé sama sinnis. Ljósin í bænum eru og eiga að vera sameiginlegt verkefni okkar allra.

Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search