PO
EN
Search
Close this search box.

Loftslagið og dreifbýlið

Deildu 

Það er enginn vafi á því að loftslagsmál og loftslagsbreytingar eru eitt stærsta mál samtímans. Núna í ágúst síðastliðnum var ný loftslagsskýrsla Sameinuðu þjóðanna kynnt og þar kom skýrt fram að það þarf að grípa til frekari aðgerða til að stemma stigu við loftslagsvánni og þeirra er þörf strax. Sjálfbærni og náttúruvernd þurfa að vera lykilhugtök til framtíðar. Við höfum frábært tækifæri á Íslandi til að setja gott fordæmi og vera leiðandi í loftslagsmálum, en til þess þarf að bæta ýmislegt.

Hvað getum við gert?

Við eigum til dæmis langt í land hvað varðar samgöngur á Íslandi og þá sérstaklega á úti á landi. Við verðum að koma á loftslagsvænum samgöngum með endurnýjanlegum orkugjöfum, til þess verður að stuðla að aðgengi að þessum orkugjöfum um allt land. Einnig þarf að samnýta samgöngur mun meira, þar sem vörur og fólk er flutt með sama fararskjóta. Ríkið þarf að stuðla að því að almenningssamgöngur í dreifbýli verði efldar svo að þær verði samkeppnishæfur kostur gagnvart einkabílnum.

Það þarf að byggja upp atvinnulífið í sátt við umhverfið og án þess að gengið sé á hagsmuni komandi kynslóða. Það er mikilvægt að náttúran fái alltaf að njóta vafans. Tími uppbyggingar á mengandi stóriðju á Íslandi er liðinn. Við eigum að leggja áherslu á að nýta nýjustu tækni og skapa fjölbreytt tækifæri fyrir fólk og þá spilar aukin fjarvinna og störf án staðsetningar líka stóran hlut.

Einnig eru mikil tækifæri í endurheimt votlendis í kjördæminu, en bæði tún og óræktuð svæði eru víða ekki í notkun við landbúnað og matvælaframleiðslu. Þar má sums staðar fylla upp í skurðina. Við þurfum að aðstoða og hvetja bændur með frekari styrkjum til að endurheimta votlendi og þar með binda kolefni.

Þetta eru nokkur mál sem við teljum að séu mikilvæg til endurbóta baráttunni gegn loftslagsvánni en þetta eru þó langt því frá einu málin.

Á kjörtímabilinu hafa verið tekin stór skref í átt að umhverfisvænna samfélagi undir forystu Vinstri Grænna. Fyrsta fjármagnaða aðgerðaráætlunin gegn loftslagsvánni var sett fram sem leiddi til þess að framlög til loftslagsmála jukust um 736%, svartolía var bönnuð innan landhelgi Íslands, dregið var verulega úr plastnotkun, stórátak varð í friðlýsingum, markmið um kolefnishlutleysi árið 2040 var lögfest, loftslagsráð var stofnað og svona mætti lengi telja.

Baráttunni er þó ekki lokið, hún er bara rétt að byrja og við þurfum að hafa hraðar hendur og ráðast í ennþá róttækari aðgerðir. Með árangur stjórnvalda á kjörtímabilinu í huga ásamt góðri einkunn Ungra umhverfissinna fyrir stefnu flokksins í umhverfismálum er full ljóst hvaða flokkur mun vinna áfram að þessum málum af krafti og er tilbúinn að gera það sem þarf. Það er flokkurinn sem hefur frá upphafi sett loftslagsmálin í forgang, Vinstrihreyfingin grænt framboð.

Það skiptir máli hver stjórnar.

Ólafur Halldórsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir skipa 8. sæti og 9. sæti fyrir Vinstri græn Norðvesturkjördæmi.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search