PO
EN

Mál­svari hin­segin sam­fé­lagsins og mann­réttinda

Deildu 

Ég þekki það af eigin raun að vera hommi í samfélagi þar sem hinsegin fyrirmyndir voru fáar og réttarstaða okkar bág. Sem betur fer hefur margt breyst til hins betra frá því ég var ungur maður. En baráttan er ekki unnin.

Í mannréttindabaráttu er mikilvægt fyrir stjórnmálamenn að eiga gott samstarf við mannréttindasamtök og vinna með þeim að úrbótum í löggjöf og framkvæmd hennar. Það höfum við í VG einmitt gert á undanförnum árum og í krafti ráðherrasetu okkar unnið að stefnumótun í málefnum hinsegin fólks í góðu samstarfi við Samtökin ’78 og fleiri samtök. Það samstarf hefur fært okkur úr 18. sæti upp í 2. sæti á Regnbogakorti ILGA á aðeins sex árum, en kortið er mælikvarði á stöðu hinsegin fólks í mismunandi löndum Evrópu. Lög um kynrænt sjálfræði eru eitt stærsta skrefið sem tekið hefur verið í þessu sambandi. Einnig hefur skipt máli að við höfum treyst Samtökunum ’78 til margvíslegra verkefna með þjónustusamningum sem ætlað er að tryggja fræðslu og ráðgjöf í skólum, á vinnustöðum og til hinsegin einstaklinga, aðstandenda og fagaðila, til dæmis í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Síðustu ár höfum við Vinstri græn verið leiðandi í því að laga réttarstöðu hinsegin fólks hér á landi en málaflokkurinn hefur heyrt undir ráðuneyti undir okkar stjórn. Við höfum þannig haft forgöngu um að tryggja réttindi og atvinnuöryggi fyrir hóp fólks sem hefur átt undir högg að sækja. Það er árangur sem næst ekki af sjálfu sér. En við megum ekki stoppa þar. Enn eru mikilvæg verkefni fyrir höndum og á stefnuskrá Vinstri grænna er meðal annars að auka vernd intersex fólks, bæta þjónustu við trans börn, setja skýran lagaramma um hatursorðræðu og hatursglæpi gegn hinsegin fólki og vinna að mótun stefnu um móttöku hinsegin fólks sem leitar hér að alþjóðlegri vernd.

Bakslag í hinsegin baráttunni er því miður staðreynd. Ég vil vinna áfram að því að tryggja að hinsegin fólk, bæði ungt og eldra, geti lifað öruggu lífi í opnu samfélagi þar sem við öll njótum okkar sjálfsögðu mannréttinda. Það er margt enn óunnið og mikilvægt að halda áfram vinnu við að uppræta fordóma, útskúfun og ofbeldi í garð hinsegin fólks. Í því samhengi er mikilvægt að viðbragðsaðilar geti spornað gegn hatursorðræðu og hatursglæpum í garð hinsegin fólks á grundvelli skýrra laga og viðbragðsáætlana.

Saman þurfum við að vinna áfram að jöfnum réttindum hinsegin fólks á við önnur í samfélaginu samhliða því að efla fræðslu og samkennd í samfélaginu. Munum að aukin réttindi eins hóps til jafns við aðra minnkar ekki réttindi hinna síðarnefndu.

Ég mun ekki láta mitt eftir liggja og óska eftir stuðningi ykkar til að halda áfram að berjast fyrir mannréttindum hinsegin fólks á Alþingi Íslendinga.

Höfundur er varaformaður Vinstri grænna og skipar 1. sæti á lista VG í Suðvesturkjördæmi.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search