PO
EN

Mannréttindadómstóllinn úr­skurðar að­gerða­leysi í loftlagsmálum mann­réttinda­brot

Deildu 

Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði í dag að mannréttindi hafi verið brotin með aðgerðarleysi í loftslagsmálum. Dæmdi dómstóllinn þar í vil 2400 eldri konum sem sameinuðust um að kæra Svissnesk stjórnvöld fyrir að stofna lífi eldri kvenna og annarra í viðkvæmri stöðu heilsufarslega í hættu, með því að hafa brugðist því hlutverki að grípa til brýnna aðgerða vegna loftlagsvandans. Konurnar, flestar á sjötugsaldri, sögðu að aldur þeirra og kyn gerðu þær sérstaklega viðkvæmar fyrir áhrifum hitabylgja sem tengjast loftslagsbreytingum og á það féllst dómstóllinn.

Úrskurðurinn er bindandi og er líklegur til að hafa mikil áhrif á löggjöf í þeim 46 löndum sem eiga aðild að Evrópuráðinu, þar með talið Íslandi. Sá tímamótasigur sem þessar eldri konur sóttu og fordæmisgefandi dómur Mannréttindadómstólsins munu kalla á sterkari umhverfislöggjöf og umhverfisrétt í Evrópu og um heim allan. Réttur til heilnæms umhverfis verður festur enn frekar í sessi sem grundavallarmannréttindi með lagalega bindandi hætti.

Þetta er í fyrsta sinn sem hinn virti dómstóll kveður upp úrskurð varðandi hamfarahlýnun og afleiðingar fyrir heilsu fólks. Dómstóllinn úrskurðaði hér að viðleitni Sviss til að ná markmiðum sínum um að draga úr losun hefði verið mjög ófullnægjandi. https://www.echr.coe.int/w/grand-chamber-rulings-in-the-climate-change-cases Ljóst er að það sama á við um mörg önnur ríki.

Í janúar sl. mælti ég einmitt fyrir frumvarpi á Alþingi um breytingar á ýmsum lögum til styrkingar á réttarúrræðum vegna umhverfismála og réttindum til heilnæms umhverfis. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum á lögum til styrkingar á réttarúrræðum vegna umhverfismála og réttinum til heilnæms umhverfis. Frumvarpinu er ætlað að rýmka aðgang umhverfisverndarsamtaka, útivistarsamtaka og annarra hagsmunasamtaka að dómstólum þannig að samræmist betur skuldbindingum Íslands samkvæmt Árósasamningnum. Því er ætlað að tryggja einstaklingum og lögaðilum aðgang að endurskoðunarleiðum fyrir yfirvöldum og dómstólum vegna ákvarðana sem varða umhverfið https://www.althingi.is/altext/pdf/154/s/0034.pdf

Rétturinn til heilnæms umhverfis hefur verið viðurkenndur sem sjálfstæð mannréttindi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í ályktunum allsherjarþingsins og mannréttindaráðsins. Hann tengist þýðingarmiklum réttindum einstaklinga sem njóta m.a. verndar 2. og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Til ályktana Sameinuðu þjóðanna hefur verið vísað í vinnu Evrópuráðsins og ályktunum Evrópuráðsþingsins, nú síðast í yfirlýsingu leiðtogafundarins í Reykjavík í maí 2023. Í íslenskri stjórnskipan er rétturinn til heilnæms umhverfis ekki viðurkenndur sérstaklega en nýtur öðrum þræði verndar að íslenskum rétti fyrir tilstilli mannréttindasáttmála Evrópu.

Með innleiðingu Árósasamningsins hefur Ísland skuldbundið sig til þess að virða markmið samningsins um að stuðla að vernd réttar einstaklinga og framtíðarkynslóða til að lifa í umhverfi sem stuðlar að heilsu og velferð þeirra. Nái frumvarp þetta fram að ganga eykst svigrúm einstaklinga í erfiðri sönnunarstöðu til þess að fá úr réttarstöðu sinni skorið og jafnframt verður aðgengi þeirra að réttarúrræðum í umhverfis- og auðlindamálum betur tryggt.

Tímamóta úrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu í dag markar mikilvæg vatnaskil í náttúruvernd og réttindum fólks til heilnæms umhverfis. Ísland er eitt þeirra ríkja sem ekki geta skorast undan því að ráðast í mikilvægrar lagabætur til að styrkja umhverfisrétt og réttinn til heilnæms umhverfis sem grundvallar mannréttindi í íslenskri löggjöf og stjórnarskrá.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search