Search
Close this search box.

Matvælaráðuneytið. Fiskveiðisjóður styrkir innviði og atvinnulíf

Deildu 

Stjórn Fiskeldisjóðs hefur úthlutað styrkjum til tólf verkefna í sjö sveitarfélögum, samtals að fjárhæð 247,7 milljónir króna.

Alls bárust 25 umsóknir frá átta sveitarfélögum, ein var dregin til baka þannig að fyrir lágu 24 gildar umsóknir að fjárhæð 758.512 m.kr. eða þrefalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar.

Sveitarfélag/verkefniÁr 2023
Bolungarvík33.280.000
Vatnsveita (framhaldsverkefni)33.280.000
Fjarðabyggð46.950.000
Dýpkun, Eskifjörður24.500.000
Fráveita, í sex byggðakjörnum22.450.000
Ísafjarðarbær46.280.000
Fráveita Flateyri22.010.000
Hreinsivirki og sameining útrása á Suðureyri24.270.000
Strandabyggð24.440.000
Færanlegar kennslustofur, Hólmavík24.440.000
Súðavíkurhreppur2.750.000
Afmörkun hafnarsvæðis f. ISPS vottun2.750.000
Tálknafjarðarhreppur24.760.000
Húsnæði leikskóla, Börn breyta heiminum24.760.000
Vesturbyggð69.230.000
Slökkvibifreið á Bíldudal29.020.000
Vatneyrarbúð, þekkingar- og þróunarsetur á Patreksfirði8.480.000
Viðbygging við leikskólann Araklett, Patreksfirði26.480.000
Örveruhreinsun með geislatækni5.250.000
Samtals247.690.000

Stjórn Fiskeldissjóðs metur það svo að verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni falli öll vel að áherslum sjóðsins og séu til þess fallin að styrkja innviði sveitarfélaga og atvinnulíf á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað.

Nánari upplýsingar má finna á síðu Fiskeldissjóðs.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search