Search
Close this search box.

Megi sólin skína!

Deildu 

Loftslagsmálin eru í brennidepli fyrir komandi kosningar og það má segja að þetta séu fyrstu kosningarnar þar sem flestir stjórnmálaflokkar leggja að einhverju leyti áherslu á mikilvægi aðgerða gegn loftslagsvánni.

Umhverfis- og loftslagsmálin hafa löngum verið á jaðri stjórnmálanna, en Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur frá stofnun lagt áherslu á málaflokkinn, og hefur fylgt aukinni vísindalegri þekkingu eftir með aðgerðum sínum og stefnum. Þetta er því ekki ný áhersla hjá okkur, enda hafa umhverfisráðherrar VG unnið ötullega að loftslagsmálum. Á þessu kjörtímabili hefur langvarandi kyrrstöðu verið snúið við og mörg mikilvæg skref verið tekin í loftslagsmálumnáttúruvernd og innviðum og aðgerðum í átt að hringrásarhagkerfi, en það er bara byrjunin. Það er löngu tímabært og jákvæð þróun að fleiri flokkar átti sig á mikilvægi loftslagsaðgerða, því það mun krefjast þverpólitískrar samstöðu til að stuðla að þeim róttæku samfélagslegu breytingum sem til þarf.

Ungir Umhverfissinnar kynntu á föstudag niðurstöður kvarðans sem þau hönnuðu til að meta loftslags- og umhverfisstefnur stjórnmálaflokka í aðdraganda Alþingiskosninganna. Þetta er metnaðarfullt framtak, til þess fallið að „afrugla“ oft flóknar og viðamiklar stefnur, og auðvelda þannig kjósendum sem láta sig loftslagsmálin varða að taka upplýsta ákvörðun í kjörklefanum. Kvarðinn var unninn af miklu gagnsæi og er til þess fallinn að skapa þrýsting á stjórnmálaflokka um að taka metnaðarfulla afstöðu til umhverfismála.

Allir nema þrír flokkar fengu falleinkunn. Þetta eru mikil vonbrigði, og í raun óásættanlegt. Auðvitað segja einkunnargjafir á borð við þessar ekki alla söguna, og ljóst er að flestir flokkar eru með loftslagsmál á einn eða annan hátt á stefnuskrá sinni. Einkunnirnar eru samt góður mælikvarði á hversu mikla yfirsýn, metnað og vilja flokkarnir hafa til að takast á við loftslagsvána.

Þessum metnaði þarf svo að fylgja eftir með skýrum aðgerðum sem trappa niður losun eins fljótt og auðið er. Til þess þarf samstöðu, og þeir flokkar sem ekki náðu tilsettum árangri geta enn notað þetta tækifæri til þess að endurskoða sína stefnu, og í raun notað kvarðann sem verkfæri til þess að gera betur í málaflokknum. Loftslagsmálin mega ekki vera pólitískt bitbein, og vonandi er sú tíð liðin, því tíminn er of naumur og þörfin til aðgerða of mikil. Skýr skilaboð vísindanna setja ógnina í samhengi, en eru okkur líka hvatning til góðra verka. Ég er sannfærð um að stjórnmálin munu ná enn frekar utan um þetta stærsta viðfangsefni okkar og VG er og verður leiðandi afl í þessari baráttu. Við leggjum áherslu á málefnalega umræðu og samstöðu, því það er okkur ljóst að einungis þannig náum við árangri. Loftslagsstefna okkar er róttæk en raunhæf, og við munum fylgja henni eftir með skýrum, framsæknum og fjármögnuðum aðgerðum.

Höfundur er doktorsnemi í umhverfis- og þróunarfræði og skipar 3. sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavík norður.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search