Search
Close this search box.

Mörgum spurningum ósvarað

Deildu 

Það er gagnrýnivert hvernig Bankasýsla ríkisins hefur haldið á sölu hluta í Íslandsbanka og gagnsæi og upplýsingagjöf að hennar hálfu um framkvæmdina hefur verið ábótavant. Það er ljóst að fara verður ofan í saumanna á ferlinu. Trúverðugleiki Bankasýslu ríkisins hefur beðið hnekki og það myndi auðvelda stofnunni að endurheimta traust ef forstjóri og stjórn hennar myndu víkja. Ekki ætti að koma til álita að selja frekari hluti í Íslandsbanka fyrr en öll kurl eru komin til grafar um framkvæmdina, og hagsmunir almennings tryggðir ásamt þeirri umgjörð viðskiptasiðferðis sem ber að viðhafa við sölu ríkiseigna.

Ríkisendurskoðandi starfar á vegum Alþingis. Hann er trúnaðarmaður þess og ábyrgur gagnvart því við endurskoðun og eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins. Stjórnskipunar og eftirlitsnefnd fjallar um tilkynningar og skýrslur frá Ríkis­­endur­­skoðun. Aðrar þingnefndir njóta einnig atbeina embættisins á sínum fagsviðum.

Frá því ákveðið var að hefja sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka hafa stjórnvöld lagt þá skýru línu að allra mikilvægast væri að tryggja traust og gagnsæi. Þó að listinn hafi verið birtur er ljóst að mörgum spurningum er enn ósvarað um framkvæmd Bankasýslunnar á sölunni. Þess vegna er úttekt Ríkisendurskoðunar mikilvæg. Markmið hennar er að tryggja að þingið og almenningur allur fái svarað spurningum sínum og lagt verði mat á hvort unnið hafi verið samkvæmt lögum og heilbrigðum viðskiptaháttum. Hér er farið með verðmæti almennings og nauðsynlegt að framkvæmdin sé hafin yfir vafa. Það liggur fyrir hver stefna stjórnvalda við sölu á þessum eignarhlutum ríkisins er og það liggur sömuleiðis fyrir hver markmiðin voru sem ná átti með sölunni.

Ástæða er til að vara við því að grafið sé undan stöðu og hlutverki Ríkisendurskoðunar sem sjálfstæðrar og óháðrar eftirlitsstofnunar alþingis. Fyrsta rökrétta skrefið nú í ljósi þess sem fyrir liggur, er úttekt Ríkisendurskoðunar og umfjöllun stjórnskipunar og eftirlitsnefndar á skýrslu embættisins. Ríkisendurskoðun hefur gegnt veigamiklu hlutverki fyrir löggjafann til að veita aðhald, til að greina og upplýsa mál fyrir þingið og hvernig þurfi að bregðast við með viðeigandi hætti ef niðurstaðan er á þann veg. Við þekkjum sannarlega að oft hefur þess orðið þörf. Þingmenn og þingnefndir hafa ítrekað kallað eftir úttektum og skýrslum undanfarin ár frá Ríkisendurskoðun um smærri og stærri mál og borið traust til Ríkisendurskoðunar og álita sem frá þeim hafa komið. Rannsókn Ríkisendurskoðunar útilokar ekki að hægt verði að undirbúa frekari úttektir á ferlinu á meðan vinnu stofnunarinnar stendur ef til þess standa ríkar ástæður. Ef að undangenginni úttekt Ríkisendurskoðunar kemur í ljós að þörf sé á að fara frekar ofan í saumanna á einstökum þáttum, þá vænti ég þess að það verði gert.

Bjarni Jónsson, þingmaður VG.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search