Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga var haldið í síðustu viku á Akureyri. Á föstudag tók nýkjörin stjórn við. Sambandið er gríðarlega mikilvægur samstarfsvettvangur sveitarfélaganna og því mikilvægt að VG eigi öflugan fulltrúa í stjórn.
Nanný Arna Guðmundsdóttir, bæjarstjórnarfulltrúi í Ísafjarðarbæ var kosin fulltrúi VG í nýja stjórn. Álfhildur Leifsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi VG í Skagafirði og formaður sveitarstjórnarráðs VG verður varamaður Nannýjar.