Search
Close this search box.

Ný stjórn kjörin á landsfundi Vinstri grænna

Deildu 

Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem haldinn er á Grand hóteli um helgina var í dag kjörin ný stjórn flokksins. Alls barst 21 framboð í stjórn en hún er skipuð ellefu aðalmönnum og fjórum varamönnum.

Katrín Jakobsdóttir var endurkjörin formaður flokksins en hún hefur verið formaður frá árinu 2013. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, er nýr varaformaður. Katrín hlaut 187 atkvæði eða öll greidd atkvæði. Guðmundur Ingi hlaut 187 atkvæði af 192 greiddum atkvæðum. Fimm skiluðu auðu.

Ingibjörg Þórðardóttir er nýr ritari hreyfingarinnar. Ingibjörg hlaut 119 atkvæði af 192. Una Hildardóttir sem einnig var í framboði hlaut 72 atkvæði. Einn skilaði auðu.

Rúnar Gíslason er nýr gjaldkeri hreyfingarinnar. Rúnar hlaut 117 atkvæði af 192. Ragnar Auðun Árnason sem einnig var í framboði hlaut 69 atkvæði. Sex skiluðu auðu.

Meðstjórnendur voru kjörnir en þeir eru:

Ragnar Auðun Árnason.

Sóley Björk Stefánsdóttir.

Berglind Häsler .

Álfheiður Ingadóttir.

Þóra Magnea Magnúsdóttir.

Elva Hrönn Hjartardóttir.

Andrés Skúlason

Varamenn:

Bjarni Jónsson.

Cecil Haraldsson.

Guðný Hildur Magnúsdóttir.

Einar Bergmundur Þorgerðason Bóasson.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search