Search
Close this search box.

Nýliðunarstuðningur í landbúnaði 20

Deildu 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði.
Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.

Þeir einstaklingar geta sótt um stuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur:

a. Uppfylla skilyrði skv. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað.
b. Eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
c. Eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
d. Hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning
e. Hafa ekki hlotið nýliðunarstuðning í mjólkurframleiðslu eða bústofnskaupastyrki til frum¬býlinga í sauðfjárrækt samkvæmt þágildandi reglum árin 2015-2016.
f. Hafa með sannarlegum hætti lagt út fyrir fjárfestingu annaðhvort með eigin fé eða lántöku.

Fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:

a. Yfirlýsing um að umsækjandi sé nýliði.
b. Upplýsingar um eignarhald lögaðila úr fyrirtækjaskrá RSK, sé um lögaðila að ræða.
c. 5 ára rekstraráætlun með greinargerð, unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
d. Afrit af þinglýstum kaupsamningi vegna fjárfestingar sem óskað er stuðnings við.
e. Afrit af reikningum fyrir kaupum.
f. Afrit af leigusamningi, ef við á.

Áhugasömum umsækjendum er bent á að kynna sér forgangsreglur.

Umsóknum skal skila inn á www.afurd.is 
Umsóknarfrestur er til 1. september.

Hér má finna reglur um forgangsröðun nýliðunarumsóknar.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search