Search
Close this search box.

Opnum hliðin – stækkum dalinnn

Deildu 

Fyrir 65 árum tók bæjarstjórn Reykjavíkur þá ákvörðun að friða gömlu bæjarhúsin í Árbæ. Jafnframt var ákveðið að þangað skyldi flytja ýmis þau hús sem talin væru sögulega mikilvæg en þyrftu að víkja fyrir nýbyggingum. Hinu nýja Árbæjarsafni var jafnframt ætlað að miðla gömlum verkháttum í trúverðugu umhverfi.

Stofnun safnsins var mikil gæfa því þannig tókst að bjarga ómetanlegum menningarverðmætum undan jarðýtum og skóflukjöftum. Síðar áttu þó viðhorf í húsaverndunarmálum eftir að þroskast enn frekar og sú stefna varð almennt ofaná að reyna að vernda hús í sínu upprunalega umhverfi eða sem næst því.

Fyrstu árin hefði Árbæjarsafn vart getað verið meira í alfaraleið þar sem sjálfur Suðurlandsvegurinn til og frá Reykjavík lá um hlaðið. Nýjar vegatengingar og uppbygging Árbæjar- og Ártúnshverfa hafa hins vegar gert það að verkum að aðkoman að safninu er fjarri því eins áberandi nú um stundir og áður var. Árbæjarsafnið er perla, en spurningin er hvort ekki megi leita leiða til að lyfta því enn frekar og um leið nýta það til að styrkja Elliðaárdalinn, sem er eitt mikilvægasta útivistarsvæði borgarbúa.

Frábærar gönguleiðir

Við í Vinstri grænum viljum láta kanna alvarlega þann möguleika að opna safnsvæðið og láta það og stígakerfi þess verða hluta af göngu- og hjólastígum Elliðaárdalsins. Þannig gætu borgarbúar rölt sér til ánægju innan um hin gömlu og fallegu hús. Það sem helst hefur staðið í veginum fyrir því að girðingunum umhverfis Árbæjarsafn verði einfaldlega rutt úr vegi er sú staðreynd að safninu er gert að afla sér tekna með miðasölu. Með nútímatækni ætti það þó ekki lengur að vera vandamál. Auðveldlega mætti selja inn í einstök hús eða sýningar með einföldum tæknilegum lausnum þótt svæðið sjálft yrði opnað. Aukin umferð um safnsvæðið gæti líka styrkt veitingasölu í kaffihúsi safnsins, Dillonshúsi – en lengi hefur verið kallað eftir veitingasölu í Elliðaárdal.

Með því að hætta að líta á Árbæjarsafn sem einangraða eyju en skipuleggja safnsvæðið þess í stað sem hluta af stærri heild, má ætla að margfalt fleira fólk skoði hin sögufrægu hús að utan. Það mun væntanlega kveikja áhuga enn fleiri en nú er á að fá að fræðast um sögu þeirra og kynna sér þau að innan. Sláum tvær flugur í einu höggi og styrkjum eina okkar mikilvægustu menningarstofnunum og eflum um leið dýrmætt útivistarsvæði.

Stefán Pálsson, sagnfræðingur, skipar 2. sætið á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search