Search
Close this search box.

Ó­um­deilt mikil­vægi menningar í heims­far­aldri

Deildu 

Öll höfum við þurft að fara á mis við eitthvað í ástandinu sem hefur einkennt líf heimsbyggðarinnar allrar undanfarið rúmt ár af völdum heimsfaraldurs Covid-19. Eitt af því sem við höfum öll saknað eru menningarupplifanir. Leikhús, ópera, danssýningar, tónleikar, uppistand, bíó og aðrar upplifanir þar sem við njótum þess að láta listina auðga andann, skemmta okkur og tengja okkur hvert við annað. Listamenn létu þó ekki sitt eftir liggja og fundu frumlegar leiðir til að halda áfram að gera einmitt það á meðan faraldurinn dundi á okkur. Beinar útsendingar í sjónvarpi og á netinu, frábært framtak Listahátíðar þar sem fólk gat sent ástvinum og fjölskyldu heimsenda skemmtun alveg upp að dyrum og aðrar lausnir sem voru nýttar til að við gætum öll haldið áfram að njóta menningar.

Þó við söknum öll samverunnar sem felst í því að sitja saman úti í sal og upplifa verður ekki litið fram hjá því hversu aukin tækifæri þetta veitti þeim sem búa fjarri þeim stöðum þar sem alla jafna er hvað blómlegast menningarlíf að finna. Í Covid höfðu þau tækifæri til að njóta á nákvæmlega sama hátt og hin sem búa í hringiðu menningarlífsins án þess að þurfa að ferðast um langan veg. Vert er að hafa í huga þá möguleika sem við uppgötvuðum á fjölbreyttri miðlun menningar þegar lífið fer að komast í eðlilegar horfur og við fjölmennum sem aldrei fyrr í menningarhús um land allt til að upplifa og njóta. Mikið hefur verið talað um þær breytingar sem hafa orðið á því hvernig skólakerfi og vinnustaðir nýta sér tæknina í daglegu starfi. Allar líkur eru á því að möguleikar á fjarvinnu aukist í framhaldi af Covid og störf án staðsetningar verði algengari. Að sama skapi er eflaust margt sem hægt er að halda áfram að nýta sér til að tryggja jafnt aðgengi að menningu og listum óháð búsetu.

Mikilvægi lista og menningar í lífi okkar hlýtur að vera nokkuð óumdeilt. Við fundum það síðasta árið. Og ætli listgreinarnar leiki ekki stórt hlutverk við að hjálpa okkur að vinna úr þeirri undarlegu og oft erfiðu upplifun sem þetta ár hefur verið. Verða það ekki tónlistin, leikhúsið, myndlistin og bókmenntirnar sem varðveita þessa sameiginlegu reynslu okkar og miðla til komandi kynslóða. Alveg eins og þau hafa létt okkur lundina á meðan faraldurinn hefur dunið á okkur.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er þingflokksformaður Vinstri grænna

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm situr í stjórn Ungra vinstri grænna

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search