Search
Close this search box.

Plastburðarpokar burt úr verslunum

Deildu 

Um áramótin tóku þær reglur gildi sem banna afhendingu plastburðarpoka í verslunum. Bannið tekur jafnt til þunnu, glæru grænmetispokanna og innkaupaburðarpokanna, en nær ekki yfir plastpoka sem eru seldir í rúllum í hillum verslana. Til þess að koma í veg fyrir að einnota neysla færist yfir á aðra eru einnota burðarpokar úr öðrum efniviði en plasti gjaldskyldir.

Plastpokabannið er í samræmi við Evróputilskipun sem lýtur að því að draga úr notkun á plastpokum. Bannið var einnig meðal þeirra tillagna sem samráðsvettvangur um aðgerðir í plastmálefnum afhenti Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, í loks árs 2018. Í samráðsvettvangnum áttu sæti m.a. fulltrúar atvinnulífsins, sveitarfélaga, umhverfisverndarsamtaka, félagasamtaka, opinberra stofnana, Alþingis og ráðuneyta.

Plastpokabannið er ein af fjölmörgum aðgerðum sem stjórnvöld ráðast í til þess að draga úr notkun á plasti, auka endurvinnslu á því og koma í veg fyrir plastmengun sjávar. Nánar má lesa um aðgerðirnar í aðgerðaáætlun í plastmálefnum; Úr viðjum plastsins, sem kom út síðastliðið haust.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search