Search
Close this search box.

Ráðist í uppbyggingu innviða á nýfriðlýstum svæðum

Deildu 

Um 140 milljónum króna verður varið til bráðaaðgerða og uppbyggingar innviða á svæðum sem friðlýst voru árið 2020. Í gildandi verkefnaáætlun Landsáætlunar um uppbyggingu innviða 2020-2022 er gert ráð fyrir að hægt sé að nota fjármagn til uppbyggingar á nýfriðlýstum svæðum, og hefur verkefnisstjórn Landsáætlunar tekið afstöðu til tillagna umsjónarstofnana náttúruverndarsvæða að slíkum verkefnum.

Á Geysissvæðinu, sem friðlýst var sl. sumar, verður m.a. farið í smíði timburpalla við Konungshver, Strokk og útsýnisskífu, sem og ráðist í gerð malarstíga. Þá verður farið í uppbyggingu innviða í Kerlingarfjöllum, en svæðið er á rauðum lista í ástandsmati vegna mikils álags af völdum ferðamanna og hætta á að svæðið tapi verndargildi sínu ef ekkert verður að gert. Álagið er hvað sýnilegast í Neðri Hveravöllum þar sem mikill skortur er á stýringu og innviðum til að verja einstök hverasvæði og leirkenndan jarðveginn. Þar verður farið í gerð göngupalla, en í dag eru hveraútfellingar og hveraleir traðkaður niður og hentistígar eða villuslóðar algengir.

Einnig á að ráðast í gerð göngubrúar á 5 km langri gönguleið úr Ásgarði í Hveradali. Þetta er ein vinsælasta gönguleiðin á svæðinu en Ásgarðsá, sem getur verið djúp, kröftug og er ísköld, hefur reynst mikill farartálmi fyrir þá sem ekki eru útbúnir í að vaða.

Verkefnisstjórnin leggur einnig til að ráðist verði í vinnu í umhverfi Búrfells og Búrfellsgjár, en gönguleiðin í Búrfellsgjá er mjög vinsæl og mikið álag á henni. Viðkvæmur gróður á svæðinu liggur því sums staðar undir skemmdum vegna traðks.

Önnur verkefni sem má nefna eru gerð upplýsinga- og gönguleiðaskilta við Goðafoss, sem og vinna í Þjórsárdal við viðhald innviða við Háafoss og frumathugun á uppbyggingarþörf í Gjánni og við Hjálparfoss.

,,Friðlýsing svæða er mikilvæg til að vernda náttúru- og menningarminjar svæða fyrir komandi kynslóðir. Með friðlýsingu verður líka oft til frekara aðdráttarafl sem getur nýst í atvinnusköpun heima í héraði. Ég hef lagt áherslu á að hægt sé að beina fjármagni úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða  inn á nýfriðlýst svæði og taka á vandamálum strax. Á þessu ári hafa átta ný svæði verið friðlýst og á mörgum þeirra er þörf á úrbótum sem brýnt er að geta brugðist við svo náttúran njóti vafans. Friðlýsing felur í sér tæki til að stýra sem er vel studd af fjármagni í Landsáætlun en þar er um einum milljarði króna úr að spila ár hvert“, sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search