Virðulegi forseti – góðir landsmenn.
Við höldum nú inn í síðasta vetur þessa kjörtímabils og okkar bíða ærin verkefni. Fleira og fleira fólk á erfitt með að ná endum saman vegna hárra vaxta. Að ná niður verðbólgu þannig að vextir geti lækkað, verður því stærsta verkefni þessa vetrar.
Það er alveg skýrt að ríkisstjórnin mun ekki ráðast gegn verðbólgunni með blóðugum niðurskurði sem myndi ógna félagslegum stöðugleika.
Jú, við munum sýna aðhald í ríkisfjármálum, sporna við útgjaldavexti, en einnig afla nýrra tekna. Og, við verjum velferðina fyrir niðurskurðarhnífnum sem sumir stjórnarandstöðuflokkar munda og vilja beita.
Virðulegi forseti. Við munum halda áfram að efla velferðarkerfin og hið félagslega stuðningsnet, einkum til að koma til móts við þá hópa sem verðbólgan hefur leikið hvað verst: lágtekjufólk og barnafjölskyldur.
Hér skiptir mestu máli ríflegur kjarapakki ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Í honum eru miklar kjarabætur í formi hækkaðra húsnæðisbóta og barnabóta, gjaldfrjálsra skólamáltíða, vaxtabóta og frekari uppbyggingu félagslegs húsnæðis.
Allar þessar aðgerðir eru félagslegs eðlis og stuðla að meiri jöfnuði og réttlátara samfélagi.
Við stöndum hins vegar enn frammi fyrir of hárri verðbólgu, þó hún sé á niðurleið og það er að stórum hluta vegna húsnæðisliðarins. Þar þarf áframhaldandi sameiginlegt átak.
Ísland er ríkt af auðlindum. Við Vinstri græn leggjum ríka áherslu á að tryggja stjórnarskrárvarða þjóðareign á auðlindum fyrir kynslóðir framtíðarinnar. Jafnframt að sterku umhverfisverndarákvæði verði komið í stjórnarskrá og að gjald af nýtingu auðlinda renni í sameiginlega sjóði okkar.
Við verðum að tryggja sjálfbæra nýtingu allra auðlinda og breyta hugsunarhætti okkar og horfa á náttúruna sem friðhelga og að nýting hennar sé undantekning frá þeirri meginreglu.
Virðulegi forseti. Loftslagsváin vofir enn yfir okkur. Um leið og ég fagna því að ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sé komin út, þá leyfi ég mér að brýna okkur öll, allt samfélagið, til að taka enn stærri skref.
Loftslagsmálin verða alltaf að vera útgangspunktur, því loftslagið er umgjörðin og grunnurinn utan um auðlindirnar og vistkerfin og á þeim byggjum við tilveru okkar. Án þeirra höfum við ekkert. Hvorki fæði né klæði.
Og þess vegna er baráttan gegn loftslagsvánni ekki bara stærsta umhverfismálið, heldur líka eitt stærsta velferðarmál 21. aldarinnar.
Virðulegi forseti. Á undanförnum árum höfum við samþykkt hér á Alþingi margvísleg mál sem hafa fært okkur fram á við þegar kemur að jafnrétti kynjanna, mannréttindum hinsegin fólks og jafnri meðferð fólks utan sem innan vinnumarkaðar.
Samt erum við að upplifa bakslag í viðhorfum gagnvart konum og hinsegin fólki, gagnvart fötluðu fólki og innflytjendum. Um allan heim. Við sem samfélag verðum að snúa þessu bakslagi við.
Ég nefni sem dæmi að í mínum huga er algjört forgangsverkefni að útrýma kynbundnum launamun og kynbundnu ofbeldi. Hvorugt á heima í samfélagi okkar. Og við verðum að virða allt hinsegin fólk eins og það er. Ekki bara hommana og lesbíurnar, heldur líka trans fólk, intersex fólk og aðra hópa.
Þau hræðilegu ofbeldismál meðal ungmenna sem við höfum orðið vitni að undanfarið mega ekki endurtaka sig. Leiðarljósið þarf að vera samfélag þar sem að samkennd, kærleikur og heilbrigð samskipti eru í forgrunni.
Ríkisstjórnin hefur sett aðgerðir gegn ofbeldi barna í algjöran forgang.
Virðulegi forseti. Við höfum náð miklum árangri fyrir samfélagið á undanförnum árum. En baráttunni fyrir félagslegu réttlæti, mannréttindum og kvenfrelsi, friði og umhverfis- og náttúruvernd, þeirri baráttu lýkur aldrei.
Á komandi þingvetri bíða okkar mörg þýðingarmikil mál. Ég vil þar nefna sérstaklega:
- samgönguáætlun og fyrstu lögin um almenningssamgöngur,
- lögfestingu Samnings sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks,
- stefnu á sviði sjávarútvegs og margvíslegar breytingar á fiskveiðilöggjöfinni, ekki síst breytingar sem auka eiga gagnsæi og réttlæti í meðferð þessarar sameiginlegu auðlindar þjóðarinnar.
Ég mun jafnframt í nóvember koma með mikilvæg þingmál í málefnum innflytjenda fyrir þingið. En tækifæri innflytjenda eru ekki þau sömu og innfæddra eins og ný skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, sýnir. Hér þarf að gera betur. Það þarf meiri aðstoð í skólana, auka færni og kunnáttu innflytjenda í íslensku og það þarf að meta að meiri verðleikum hæfileika, menntun og reynslu innflytjenda. Það er gott fyrir einstaklingana og fyrir samfélagið.
Virðulegi forseti – góðir landsmenn! Við göngum nú í gegnum erfiðleika í efnahagslífinu en við munum komast saman í gegnum þá erfiðleika og það sést til lands í þeim efnum. Við munum hafa hag almennings að leiðarljósi í störfum okkar.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra
ræða flutt á Alþingi undir stefnuræðu forsætisráðherra, miðvikudagskvöldið 11. september 2024