Kæru félagar!
Frábært að vera hér með ykkur í dag.
Þetta vor hefur verið mjög viðburðaríkt fyrir okkur í VG og það er engin lognmolla í kringum okkur.
Í mars héldum við landsfund og kusum nýja forystu. Í maí gengum við til sveitarstjórnarkosninga og buðum fram ýmist í eigin nafni eða í samvinnu við aðra í alls átta sveitarfélögum um land allt og nú í júní söfnumst við saman hér á flokksráðsfundi.
Framboð okkar til sveitarstjórnarkosninga voru fleiri en mörg héldu fyrir skemmstu að við gætum átt aðild að. Og uppskeran var góð; við bættum við okkur fylgi á Akureyri og bættum helling við okkur í Múlaþingi. Fengum afar góða kosningu í sameiginlegum framboðum í Fjallabyggð og Borgarbyggð þar sem við erum að auki komin í meirihlutasamstarf. Í Norðurþingi gekk okkur vel þó að fleiri framboð byðu fram en áður. Í Reykjavík fékk Vinstrið, sameiginlegt framboð okkar í Vinstri grænum og Vors til vinstri, 9,5%. Það mældist lengst af þriðja stærsta framboðið í höfuðborginni og þótt við hefðum viljað meira getum við mjög vel við unað.
Við buðum líka fram í Kraganum en þar er enn verk að vinna.
Félagar.
Þegar heildarmyndin er skoðuð blasir við önnur niðurstaða en mörg spáðu okkur fyrir alls ekki svo löngu. Margir töldu að erindi Vinstri grænna væri á algjöru undanhaldi og við myndum alls ekki geta boðið fram í sveitarstjórnarkosningunum.
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna voru önnur en þessar úrtöluspár og eru staðfesting á því að Vinstri græn eru þróttmikil stjórnmálahreyfing með sterkar rætur í samfélögum víða um land.
Ég vil óska sveitarstjórnar- og borgarstjórnarfólkinu okkar og varamönnum til hamingju með sætin ykkar. Og ég vil líka þakka ykkur fyrir sem lögðuð hart að ykkur við framboðin og undirbúninginn fyrir kosningarnar sem stundum tók marga mánuði en stundum aðeins nokkrar vikur en langoftast var kosningabaráttan háð af litlum fjármunum en með verðmætum og góðum mannauð.
Það er nefnilega öllum ljóst að félagar í VG voru og eru bakbeinið og traustur grunnur framboðanna sem við tókum þátt í því ef það er eitthvað sem við eigum nóg af er það reynslan, þekkingin og hugsjónirnar.
Kjósendur sendu okkur líka skilaboð. Þau sögðu að það væri enn þá þörf fyrir stjórnmálaafl sem berst kröftuglega fyrir félagslegu réttlæti, jöfnum tækifærum, öflugri velferð, vernd náttúrunnar, loftslaginu og stendur með mannréttindum.
Kjósendur sögðu að það skipti máli að þessi rödd heyrðist í bæjum landsins og í borginni.
Og þeir sögðu að Vinstri græn ættu áfram erindi í íslenskum stjórnmálum.
Til að sporna við því að hægribylgjan sem við sáum 16. maí rísi enn hærra verðum við að vera til staðar sem alvöru málsvari félagslegs réttlætis, umhverfisverndar og mannréttinda í sveitarfélögunum okkar. Við erum mótvægið við pólitík einstaklingshyggju og einkavæðingar, ágengrar nýtingar náttúrunnar og virðingarleysis fyrir mannréttindum. Við stöndum með friði í heimi sem aldrei hefur séð fleiri stríð.
Nærsamfélögin og íbúarnir um allt land þurfa á okkur í VG að halda fyrir annars konar pólitík því við munum standa vaktina um réttlát stjórnmál og það skiptir fólk og daglegt líf þess miklu máli. Hér þurfum við að byggja okkur upp á ný og hér er verk að vinna!
Kæru félagar,
Ég er ekki að ofmeta þessi úrslit en við eigum heldur ekki að vanmeta þau, því þau sýndu okkur að grunnurinn sem við byggjum okkar starf á er traustari en margir héldu og að framtíð Vinstri grænna ræðst fyrst og fremst af því hvað við gerum héðan í frá.
Og liður í því er að koma saman hér við vorlok og í sumarbyrjun á flokksráðsfundi til að hittast og ræða stjórnmálin hvert við annað, fagna árangri félaga okkar og spekúlera saman hvað við getum gert betur.
Í dag setjum við þungann og athyglina á tvö af okkar meginmálum: umhverfismálin og vinnumarkaðsmálin. Þessir málaflokkar eru algjör kjarnamál í okkar stefnu en eru líka í stanslausri deiglu og síbreytilegir.
Því alveg eins og málaflokkarnir breytast oft og þróast þurfum við í Vinstri grænum að vera stöðugt á tánum og vera sífellt að skerpa okkar framsetningu og víkka út okkar sýn, setja fram skýrari og markvissari áherslur. Opna hugann fyrir nýjum hugmyndum og opna faðminn fyrir nýju fólki.
Í þeim tilgangi lagði ég til við stjórn að við myndum fækka málefnanefndum sem munu starfa fram að næsta landsfundi til að við værum einbeittari og markvissari og settum kraftinn í það sem skiptir okkur og fólkið í landinu mestu máli.
Ég hvet ykkur, kæru félagar, til að skrá ykkur í málefnastarfið og taka markvissan þátt í pólitískri endurnýjun okkar hreyfingar. Án ykkar þátttöku verður ekkert málefnastarf og engin pólitísk endurnýjun.
Erum við í pólitískri endurnýjun? Kunna einhver að spyrja sig.
Já, ég er þeirrar skoðunar að við séum að hefja okkar pólitísku endurnýjun. Við erum að hefja viðsnúninginn eins og sást þegar skoðanakannanir 1. maí sýndu okkur með þingmenn í fyrsta sinn í heil tvö ár.
Og við erum hvergi dottin af baki þó svo að nýleg skoðanakönnun í júníbyrjun hafi dregið okkur aðeins niður.
Eftir krefjandi tíma eru hlutirnir að hreyfast, kæru félagar.
Erindi okkar í Vinstri grænum hefur nefnilega líklega aldrei verið mikilvægara en nú.
Á tímum bakslags í kynjajafnrétti. Á tímum stöðugra stríðsátaka og hernaðarhyggju.
Á tímum þegar útlendingaandúð er sýnileg víða í samfélaginu og óábyrgir stjórnmálaflokkar egna fólki og hópum saman eftir því hvernig það lítur út eða hvernig það vill skilgreina sig.
Þegar stöðugt er veist að mannréttindum fólks á flótta. Á tímum þegar ríkisstjórn Íslands býr til brottvísunarbúðir fyrir fólk sem leitar eftir alþjóðlegri vernd og vill ekki láta reka sig burt. Þegar börn og fullorðnir eru frelsissvipt á Íslandi og sett í búðir sem einhvern tíma hefðu verið nefndar eitthvað annað en brottvísunarbúðir.
Á tímum þegar vegið er að náttúrunni með ótrúlegri ágirnd fyrir óljósan ávinning fyrir erlend fyrirtæki eða liðkað er fyrir sjókvíaeldi fyrirtækja í fjárhagskröggum sem eyðileggur laxastofninn og spillir fjörðum. Á tímum þegar vaðið er af stað með vindorkuver án nokkurrar stefnu.
Á þessum tímum þarf stjórnmálaafl sem er mótvægið við öllu þessu. Þar komum við í Vinstri grænum til sögunnar með okkar skýru stefnu og okkar áherslur um sterka velferð og vernd um mannréttindi og náttúruna.
En kæru félagar, hlutverk okkar er ekki aðeins að vera mótvægi.
Hlutverk okkar er líka að vera valkostur, raunverulegur valkostur.
Því það er ekki nóg að benda eingöngu á það sem er rangt eða óréttlátt.
Fólk vill líka heyra hvernig við í VG ætlum að byggja upp betra samfélag. Hverjar okkar hugmyndir eru um réttlátara samfélag.
Samfélag þar sem enginn þarf að hafa áhyggjur af því hvort hann hafi nokkurn tíma efni á húsnæði. Þar sem launafólk fær sanngjarnan hlut af verðmætasköpuninni en ekki samfélag þar sem þriðjungur launafólks nær ekki endum saman og býr við verðlag sem er 84% dýrara en í Evrópuríkjum sem við berum okkur saman við.
Er skrítið að fólk kalli eftir því að einhver segi því að það sé til öðruvísi samfélagsgerð þar sem fólk geti lifað út mánuðinn á laununum sínum og geti búið við húsnæðisöryggi?
Fólk vill líka heyra um samfélagsgerð þar sem börn geta alist upp við hreina náttúru og vill líka heyra um græn stjórnmál sem byggja á ábyrgð á náttúrunni og loftslagi en ekki á ábyrgðarflótta og upplýsingaóreiðu um umhverfismál.
Þess vegna er verkefni okkar ekki bara að verjast hægrisveiflunni. Verkefni okkar er að sýna að önnur leið er möguleg og hún er mun meira aðlaðandi en fyrirtækjaleikskólar eða umferðarteppur mengandi einkabíla.
Kæru félagar, við eigum að tala af meiri kjarki og sjálfstrausti um félagslegt réttlæti. Við eigum að tala af meiri kjarki um frið og alþjóðlega samstöðu á tímum þegar hernaðarhyggjan sækir alls staðar á, líka hér í herlausu Íslandi.
Við eigum að tala af meiri kjarki og af sannfæringu um mannréttindi fólks á flótta þegar sífellt fleiri kjósa að gera það að skotmarki í pólitískri umræðu.
Og við eigum að tala af meiri kjarki og festu um náttúruna. Ekki vegna þess að hún sé sérmál okkar umhverfissinna, heldur vegna þess að vernd náttúrunnar er forsenda velferðar okkar og komandi kynslóða.
Það er engin tilviljun að þau mál sem fyrst eru látin víkja þegar hægrið sækir fram eru einmitt mannréttindamál, umhverfismál og félagslegt réttlæti.
Þess vegna þarf sterka vinstrihreyfingu. Þess vegna þarf okkur Vinstri græn.
Kæru félagar.
Stundum gleymist í stjórnmálunum að góðir hlutir gerast ekki af sjálfu sér.
Velferð verður ekki til af sjálfu sér.
Hún verður til vegna þess að fólk skipuleggur sig. Vegna þess að launafólk stendur saman. Vegna þess að samfélög ákveða að setja mannlega reisn ofar skammtímahagnaði og gróðahugsun.
Þess vegna mun VG áfram standa með öllu því fólki sem heldur samfélaginu gangandi á hverjum degi. Fólkinu í leikskólunum, skólunum, heilbrigðisþjónustunni, umönnuninni. Fólkinu sem vinnur við að viðhalda sterku atvinnulífi og ekki síst, sterkri grunnþjónustu fyrir okkur öll.
Við vitum að verðmæti samfélags mælast ekki fyrst og fremst í hagvexti heldur í því hvort fólk upplifir alvöru velsæld, öryggi, tækifæri og réttlæti, hvort fólk finnur fyrir samhug og samkennd þegar á bjátar.
Það er sú framtíðarsýn sem við eigum stöðugt að færa inn í íslensk stjórnmál.
Kæru félagar.
Ég bauð mig fram til formanns vegna þess að ég trúi því að Vinstri græn eigi sér framtíð.
Ég trúi því að það sé til stór hópur fólks á Íslandi sem vill samfélag sem byggir á samkennd fremur en tortryggni, samvinnu fremur en sundrungu og samfélagslegri ábyrgð fremur en skammtímahugsun einstaklingshyggjunnar.
Þessi hópur fólks bíður eftir hreyfingu sem hefur kjark til að snúa inn í kjarnann, finna gildin sín og standa með þeim gildum.
Við eigum að vera sú hreyfing.
Við eigum að vera rödd þeirra og farvegur fyrir þau sem vilja réttlátara samfélag.
Við eigum að vera rödd þeirra sem vilja vernda náttúruna.
Við eigum að vera rödd þeirra sem trúa því að mannréttindi eigi við um alla.
Og við eigum að vera þau sem bjóðum upp á annan valkost en hægrið og öfgahægrið.
Förum því héðan af þessum flokksráðsfundi með aukinn kraft, aukna samstöðu og aukna trú á verkefnið sem er fram undan.
Það hefur nefnilega aldrei verið mikilvægara.
Áfram veginn – áfram Vinstri græn.
Takk fyrir.