Stjórn Vg hefur ákveðið að áður auglýstur landsfundur Vg í maí verði rafrænn í ljósi samkomutakmarkana og stöðu kórónuveirufaraldursins. Þá hefur fundurinn verið styttur úr þremur dögum í tvo. Stjórn hefur því ákveðið að halda framhaldslandsfund í ágúst til að freista þess að koma Vg félögum saman í raunheimum fyrir kosningar. Sömu landsfundarfulltrúar verða á rafræna landsfundinum í maí og á framhaldslandsfundinum í ágúst. Á rafrænum landsfundi nú í maí verður lokið við stefnur og afgreiðslu ályktana hreyfingarinnar og þau landsfundarstörf sem þarf að ljúka áður en formleg kosningabarátta hefst. Öðrum dagskrárliðum verður frestað til framhaldslandsfundar. Þannig verður beðið með kosningar í flokksráð og stjórn, í von um að frambjóðendur til embætta á vegum Vg fái tækifæri til að kynna sig á sviði fyrir fullum sal í mikilli stemningu fyrir kosningar. Pallborð um heitustu málin mánuði fyrir kosningar verður líka á dagskrá, auk þess sem landsfundarfulltrúar fá þá tækifæri til að kynnast nýjum frambjóðendum og heyra hljóðið í forystunni þegar kosningabaráttan stendur sem hæst.
Níu málefnahópar hafa unnið að stefnumálum hreyfingarinnar undanfarið rúma ár og kynntu málefnahópsstjórar afrakstur þeirrar vinnu á rafrænum flokksráðsfundi í janúar sl. Stefnurnar, sem afgreiddar verða á rafrænum landsfundi, eru aðgengilegar á viðburðadagatali VG. Málefnahópar, sem undir venjulegum kringumstæðum kæmu saman á landsfundinum sjálfum til þess að leggja lokahönd á stefnur, munu koma saman síðustu vikurnar fyrir landsfund. Allar dag- og tímasetningar síðustu funda málefnahópanna eru líka aðgengilega í viðburðadagatali VG (. Félagar eru hvattir til þess að taka þátt í þessum síðustu fundum málefnahópanna sem eru öllum félögum opnir.
Þriðjudaginn 20. apríl kl 20 – Landbúnaður
Miðvikudaginn 21. apríl kl 20 – Nýsköpun
Laugardaginn 24. apríl kl 12 – Alþjóða- og friðarmál
Laugardaginn 24. Apríl kl 12 – Byggðamál
Mánudaginn 26. apríl kl 20 – Mennta- og menningarmál
Þriðjudaginn 27. apríl kl 20 – Innflytjendur og flóttafólk
Miðvikudaginn 28. apríl kl 17 – Sjávarútvegsmál
Miðvikudaginn 28. apríl kl 20 – Loftslagsvá og náttúra
Fimmtudaginn 29. apríl kl 20 – Jöfnuður og félagslegt réttlæti
Mánudaginn 3. maí kl 20 – Ályktanir á landsfundi