Search
Close this search box.

Ragnar Auðun nýr framkvæmdastjóri VG

Deildu 

Ragnar Auðun Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vinstri grænna. Ragnar Auðun lauk meistaraprófi í evrópskum og norrænum fræðum frá Háskólanum í Helsinki árið 2022, en hann er jafnframt með bachelorgráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Ragnar er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík.

Ragnar Auðun er fæddur árið 1994 og uppalinn í vesturbæ Reykjavíkur. Hann starfaði hjá utanríkisráðuneyti Íslands eftir útskrift 2022 til loka árs 2023.

Ragnar hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í félagsmálum. Hann var meðal annars talsmaður Ungra vinstri grænna, sat í stjórn Vinstri grænna, var formaður Vinstri grænna í Reykjavík, stúdentaráðsfulltrúi í Stúdentaráði HÍ (SHÍ), lánasjóðsfulltrúi SHÍ og varaforseti Sambands íslenskra námsmanna erlendis.

Ragnar Auðun er í sambandi með Karítas Ríkharðsdóttur sérfræðingi í samskiptum hjá Landsbankanum.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search