Search
Close this search box.

Reykja­vík á að verða hjóla­borg

Deildu 

Hjólreiðar skipta mig miklu máli. Ég hef hjólað til og frá vinnu um árabil og ég vil ekki skipta yfir í aðra samgöngumáta. Fyrir mér eru kostirnir við hjólreiðar ótvíræðir, en með því að stunda þessu léttu hreyfingu kvölds og morgna næ ég að viðhalda líkamlegri og andlegri heilsu. Ég næ að spara stórar fjárhæðir sem annars færu í bensín og síðast en ekki síst er þetta umhverfisvænn ferðamáti. Það versta er að Reykjavík er ekki sérlega góð hjólaborg.

Er það ekki rakið dæmi að borgin okkar eigi að stefna að því að halda vel utan um innviðina í kringum samgönguhjólreiðar? Ef við fáum fólk úr bílunum á reiðhjólin þá erum við að fara að bæta lýðheilsu borgarbúa með því að stuðla að hreyfingu og minni mengum. Þar að auki benda flestir útreikningar til þess að hver kílómetri af hjólreiðastíg er margfalt ódýrari í lagningu og viðhaldi en hver kílómetri af akvegi. Mér finnst eins og að fólk óttist það að hjólreiðastígarnir taki pláss frá einkabílnum. Ef það eru fleiri sem hjóla og þar með færri sem keyra þá er auðvitað meira pláss á vegunum fyrir þau sem þurfa sannarlega að nota einkabílinn.

Sjálfur hef ég hjólað í 8 löndum á meginlandinu og hef því séð að það er hægt að gera hlutina vel og það er ekkert sem segir að staðsetning Reykjavíkur norður í ballarhafi komi í veg fyrir að það sé hægt að sýna metnað hér líka og gera hlutina almennilega. Það skiptir ekki máli þó það rigni, snjói og blási og allt sé í brekkum; það eru til snjómoksturstæki, rafmangnshjól og útivistarföt.

Það sem skiptir máli er að fólki finnst það öruggt þegar það ferðast um á hjóli og að stígakerfið meiki sens. Ég skil það vel að fólk missi áhugann á því að hjóla þegar það á stöðugt í hættu á því að verða fyrir bíl og það þarf að hjóla á krókóttum og kræklóttum stígum sem enda svo á einhverri gangstéttarbrún.

Ég vil búa í borg þar sem allir geta hjólað án tilliti til aldurs eða fjölskylduaðstæðna. Ég vil ekki þurfa að hætta að hjóla þegar ég þarf að fara að skutla börnum á leikskóla og í frístund. Ég vil geta haldið áfram að hjóla þegar ég verð orðinn afi. Ég vil hafa frelsi til þess að velja annan samgöngumáta en einkabílinn. Það hefur lengi verið stefna VG að auðvelda borgarbúum að fara leiðar sinnar hjólandi, gangandi eða með öðrum virkum samgöngumátum. Vinstri-græn vilja beita sér fyrir því að unnið verði eftir nýrri hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar og flýtt verði framkvæmdum við hjóla- og göngustíga.

Höfundur er frambjóðandi í 10. sæti á lista VG í Reykjavík.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search