Rósa Björk fundaði með forseta ASÍ, Finnbirni A. Hermannssyni, í dag, föstudag, en fundur þeirra er sá fyrsti sem Rósa ætlar sér að eiga með forystufólki verkalýðshreyfingarinnar.
Finnbjörn og Rósa Björk ræddu að sjálfsögðu ástand efnahagsmála, verðbólgu og vaxtahækkanir og hátt atvinnuleysi. Einnig ræddu þau fjármálaáætlun sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur kynnti í gær. Skemmst er að segja frá því að ASÍ hefur miklar áhyggjur af fjármálaáætlun og þeim niðurskurði sem þar er boðaður og ekki síst lækkun stofnframlaga til húsnæðismála. Að auki ræddu þau forsendur kjarasamninga og erfiðar horfur þar um.
VG tekur undir áhyggjur Alþýðusambands Íslands og mun skila sérstakri umsögn um fjármálaáætlun.
Takk fyrir góðan fund!