Rósa Björk heldur áfram að hitta forystufólk í verkslýðshreyfingunni og hitti í dag Kolbrúnu Halldórsdóttur formann BHM.
Eftir fundinn segir Rósa á fecebooksíðu sinni: „Virkilega gott að funda með Kolbrúnu Halldórsdóttur, formanni BHM, og hitta starfsfólk BHM líka. Við Kolbrún ræddum auðvitað þunga stöðu efnahagsmála, verðbólgu, háa vexti og nýja fjármálaáætlun. Henni og háskólamenntuðu fólki er mjög umhugað um fjármögnun til háskólanna. Kolbrún ræddi líka um hugtakamisnotkun þegar kemur að öllu tali um launaskrið og segir háskólamenntað fólk hafa fengið skarðan hlut frá borði þegar kemur að launahækkunum og það sé vanmat á háskólamenntun í launasetningu. Töluðum líka um atvinnustefnu stjórnvalda og auðvitað mikilvægi menningar og lista og eflingu þeirra !
Ég hef sem formaður VG óskað eftir fundum með helsta forystufólki launþegahreyfingarinnar og mun á næstunni hitta sem flest af þeim til að ræða stöðu vinnandi fólks, réttindabaráttu þeirra og þau verkefni og úrlausnarefni sem þau standa frammi fyrir í krefjandi efnahagsástandi.
VG hefur, og mun ávallt, standa með launafólki og þeirra baráttu og því skiptir öllu máli að vera í góðu sambandi og þéttu samstarfi við verkalýðshreyfinguna.“