Search
Close this search box.

Samið um augasteinsaðgerðir

Deildu 

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning milli Sjúkratrygginga Íslands og LaserSjónar ehf. um augasteinsaðgerðir fyrir sjúkratryggða einstaklinga.

Samningurinn var gerður í kjölfar verðfyrirspurnar þar sem óskað var tilboða í framkvæmd 600 augasteinaðgerða á 12 mánaða tímabili. Í ljósi hagstæðs tilboðs skapast svigrúm til að fjölga aðgerðum á árinu um allt að 10-15%.

Þrír aðilar sem framkvæma augasteinsaðgerðir með greiðsluþátttöku hins opinbera, þ.e. Landspítali, Sjúkrahúsið á Akureyri og LaserSjón.

Samningurinn er til eins árs og tók gildi 1. september síðastliðinn.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search