Search
Close this search box.

Samstarf við Stertabenda um sýninguna Góðan daginn, faggi á landsbyggðinni

Deildu 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Snæbjörnsson, f.h. Stertabenda – leikhóps, undirrituðu í dag samstarfssamning um sýningar á verkinu Góðan daginn, faggi í framhaldsskólum á landsbyggðinni.

Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasaman leiðangur um innra líf sitt, fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað. Sýningin er afhjúpandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra.

Með samningnum greiðir forsætisráðuneytið Stertabenda – leikhópi eina milljón króna fyrir að bjóða framhaldsskólum á landsbyggðinni að sýna sýninguna frítt eða á viðráðanlegum kjörum. Þannig verður unnið gegn vanlíðan unglinga um land allt, fordómum og hatursorðræðu, sem því miður hefur færst í aukana að undanförnu. 

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search