Search
Close this search box.

Skóla­heilsu­gæsla, aukin sam­vinna í þágu far­sældar barna

Deildu 

Skólaheilsugæslu í reykvískum grunnskólum er sinnt af Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins. Reglulega kemur fram umræða í samfélaginu um mikilvægi öflugrar skólaheilsugæslu til að sinna margvíslegri heilbrigðisþjónustu við börn. Ljóst er að skólahjúkrunarfræðingar sinna mikilvægum verkefnum bæði innan skólanna og í nærsamfélaginu. Meðal verkefna þeirra er að sinna forvörnum og heilsuelfingu grunnskólabarna í víðum skilningi.

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum að óska eftir viðræðum til að formgera betur samstarf borgarinnar við Heilusgæslu Höfuðborgarsvæðisins um skipulag og framkvæmd skólaheilsugæslu. Málið á sér talsverðan aðdraganda en á fundi Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar 2019 lögðu fulltrúar ungmennaráðs Laugardals, Háaleitis og Bústaða fram tillögu þess efnis að gerðar verði ráðstafanir til að auka viðveru hjúkrunarfræðinga í grunnskólum borgarinnar. Mér þótti málið mikilvægt og óskaði eftir upplýsingum frá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins um stöðugildi hjúkrunarfræðinga í skólum borgarinnar. Dæmi eru um að grunnskólar í Reykjavík uppfylli ekki viðmið Heilsugæslunnar um að 650 nemendur séu að baki hverju fullu stöðugildi skólahjúkrunarfræðings, mikilvægt er að bæta úr þeirri stöðu sem allra fyrst. Skóla- og frístundaráð samþykkti svo á fundi sínum í september 2020 að vekja athygli Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins á stöðu mála. Skólahjúkrunarfræðingar sinna mikilvægri þjónustu við nemendur í grunnskólum en í lögum um grunnskóla kemur fram að þjónusta skólahjúkrunarfræðinga sé á ábyrgð heilsugæslunnar á hverjum stað.

Ég vona að Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins taki vel í umleitan Skóla-og frístundasviðs þess efnis að formgera betur samstarf varðandi skipulag og tilhögun skólaheilsugæslu, enda er um mikilvæga þjónustu við börnin í borginni að ræða. Ljóst er að vegna stærðar Reykjavíkur og þess fjölda skóla sem þar er heppilegast að samráð um þessa mikilvægu þjónustu fari fram miðlægt milli Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og Skóla- og frístundasviðs. Meðal þess sem þarf að fjalla um í slíku samstarfi er verkaskipting og sameiginleg sýn á verkefnin framundan, skipulag og tilhögun skólaheilsugæslu. Auk þess þarf að formgera betur samstarf vegna innleiðingu laga um farslæld barna, heilsugælsu barna á leikskólaaldri, heilsueflingu og kynheilbrigði. Mikilvægt er að fullnægjandi skólaheilsugæsla sé til staðar í öllum skólum borgarinnar og að jafnræði nemenda að þessarri mikilvægu þjónustu sé tryggt í hvívetna, auk þess sem samstarf ólíkra kerfa sé formgert með farsæld barna að leiðarljósi.

Elín Oddný Sigurðardóttir er varaborgarfulltrúi Vinstri grænna.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search