Matvælaþing verður haldið í Silfurbergi í Hörpu 22. nóvember 2022.
Markmið þingsins er sameina undir einu þaki þær fjölmörgu og ólíku starfsgreinar sem koma að framleiðslu, vinnslu og dreifingu matvæla á Íslandi. Þinginu er jafnframt ætlað að verða vettvangur fyrir samræðu milli neytenda, stjórnvalda og framleiðenda um matvæli.
Á þinginu mun Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynna drög að matvælastefnu fyrir matvælalandið Ísland. Gestafyrirlesarar munu flytja erindi um fæðuöryggi og stefnumörkun á matvælaframleiðslu. Einnig verða haldnar örmálstofur um afmörkuð efni.
Þingið verður sett klukkan 9:00 og lýkur klukkan 16:00. Skráning fer fram HÉR