Search
Close this search box.

Stefnum áfram í rétta átt

Deildu 

Það eru mörg góð og vegleg verk sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur staðið fyrir á kjörtímabilinu, ekki síst þegar horft er til þeirra flóknu tíma sem við lifum á í skugga heimsfaraldurs.

Margar góðar lausnir hafa verið kynntar af ríkistjórninni. Ekki einungis til að bregðast við þeirri flóknu stöðu sem við erum í heldur til að byggja upp jafnara og betra samfélag til framtíðar. Af þeim mörgu verkum er vert að nefna tæpa fimm milljarða innspýtingu til sveitarfélaga sem nú eru í kröggum vegna tekjusamdráttar auk þess sem 200 milljón króna aukning verður til sóknaráætlanna. Ákveðið hefur verið að veita 4,6 milljörðum til ferðaþjónustunnar sem er sú grein sem orðið hefur fyrir hvað mestum skaða í heimsfaraldrinum. 3000 sumarstörf eru ráðgerð fyrir námsmenn og frítekjumark námsmanna hefur verið fimmfaldað. Stórsókn er í mennta og menningarmálum og svona mætti lengi telja, svo ekki sé nú minnst á þær öflugu aðgerðir sem komið hefur verið á í heilbrigðiskerfinu, í jafnréttismálum og umhverfisvernd.

Eitt af úrræðum ríkistjórnarinnar sem mig langar að nefna sérstaklega eru hin svo kölluðu hlutdeildarlán sem bera hvorki vexti né afborganir á lánstímanum. Úrræðinu er ætlað að mæta þörfum þeirra tekjulágu og styðja við fyrstu íbúðakaup. Þetta er mikið framfaraskref þó að úrræðið henti ekki öllum. Þess vegna hefur verið unnið að mörgum og mismunandi úrlausnum því eðli máls samkvæmt eru þarfir fólks ólíkar. Eitt mikilvægt atriði við hlutdeildarlánin er sá hvati að amk 20% af þeim 4 milljörðum sem ætluð eru í verkefnið árlega skuli úthlutað til kaupa á húsnæði utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta gríðarlega mikilvæga skref styður við byggðaþróun í landinu og er til þess fallið að styðja við þau sem geta og velja að að flytja á landsbyggðina. Þessu hefur verið snúið upp í andhverfu sína og líkt við hreppaflutninga fyrri alda sem lýsir auðvitað fordómum og talar niður þau ótal tækifæri og oft og tíðum forréttindi sem landsbyggðin hefur upp á að bjóða.

Þegar líður að kosningum fara frambjóðendur mikinn í umræðunni og það virðist sem sum ætli einfaldlega að ná pólitískum frama með því að úthúða núverandi ríkissjórn og þá ekki síst Katrínu Jakobsdóttur, frekar en að leggja málefni sín og hugmyndir á borðið.

Allir vildu Lilju kveðið hafa. Undir forystu Katrínar Jakobsdóttur hefur málum verið þokað í rétta átt. Hvort gamlir hrunflokkar eða nýjar poppúlýskar hreyfingar blási í lúðra og finni Katrínu og Vinstri grænum allt til foráttu segja hin góðu verk meira en þúsund orð. Við viljum gera betur, við ætlum að standa með þeim málefnum sem nútíminn kallar eftir. Breytingarnar eiga sér ekki stað á einni nóttu, og ekki endilega á einu kjörtímabili þar sem enginn flokkur er einráður, en Ísland er á betri leið með Katrínu Jakobsdóttur í brúnni.

Höfundur er sveitastjórnarfulltrúi í Múlaþingi og situr í 3 sæti á lista VG í Norðaustur kjördæmi fyrir komandi alþingskosningar.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search