Search
Close this search box.

Steingrímur J. Sigfússon hættir í pólitík í lok kjörtímabilsins

Deildu 


Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, fyrrverandi fjármálaráðherra og lengst af formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs hyggst ekki gefa kost á sér til að leiða framboð VG í alþingiskosningunum á næsta ári. Þetta kom fram í máli Steingríms á fundi kjördæmisráðs Norðausturkjördæmis nú rétt í þessu.  Steingrímur sagðist hætta sáttur og mjög stoltur af árangri hreyfingarinnar. Þá kvaðst hann vera bjartsýnn á framtíð VG í landsmálunum, hún hefði verið til góðs fyrir samfélagið og þannig yrði það áfram.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG sagðist aldrei hafa haft eins mikla löngun til að vera á staðfundi en ekki fjarfundi, til að geta staðið upp og klappað fyrir Steingrími. Þegar hún þakkaði honum fyrir samstarfið og þau fjölmörgu störf sem hann hefur gegnt í stjórnmálunum.

Steingrímur er fæddur á Gunnarsstöðum í Þistilfirði 4. ágúst 1955, hefur setið á Alþingi fyrir Norðurlandskjördæmi eystra og síðan Norðausturkjördæmi frá því 1983 og er með lengsta þingreynslu allra núverandi þingmanna. Hann hefur leitt framboðslista í síðustu 11 alþingiskosningum og verið í framboði í öllum kosningum síðan 1978. Hann sat fyrst á þingi fyrir Alþýðubandalagið, var formaður þingflokks Alþýðubandalagsins um tíma.  Vatnaskil urðu 1999 þegar Steingrímur stofnaði Vinstri Græn ásamt fleiri félögum. Steingrímur hefur á sínum langa þingferli verið landbúnaðar- og samgönguráðherra, fjármála, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, efnahags og viðskiptaráðherra og atvinnuvega og nýsköpunarráðherra. Þá hefur Steingrímur verið leiðandi í norrænu samstarfi bæði í Norðurlandaráði og Vestnorræna ráðinu.  Hann hefur verið forseti Alþingis, fyrst í stuttan tíma 2016 og fram í janúar 2017 og síðan aftur frá því eftir kosningar 2017 og er enn.  Lesa má um feril Steingríms J. Sigfússonar í bókinni Saga VG sem kom út á 20 ára afmæli hreyfingarinnar og í bókum sem hann hefur sjálfur skrifað.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search