Search
Close this search box.

Stjórnarkjör framundan í VG í Reykjavík

Deildu 

Ragnar Auðun Árnason, formaður VG í Reykjavík lætur af embætti á næstu dögum og flytur til Finnlands, til að stunda nám í norrænum og evrópskum stjórnmálum við Háskólann í Helsinki.

Boðað hefur verið til aðalfundar VGR 10. september, þar sem ný stjórn verður kosin.  Áætlað er að halda hefðbundinn fund, en ekki fjarfund, svo framarlega sem ekki verður hert á reglum vegna kórónuveirufaraldursins. Eins og ævinlega er félögum VG ráðlagt að fylgjast vel með, ef reglur skyldu verða hertar eða staðan breytast á annan hátt fyrir 10. sept. Nýjustu upplýsingar er alltaf hægt að finna á vg.is og með því að hafa samband við skrifstofu VG sem á að hafa yfirsýn yfir breytingastjórnun sem oft þarf að grípa til á óvenjulegum tímum.

Nýr formaður og nokkrir meðstjórnendur verða kosnir á aðalfundi VGR, svo nú er tækifærið til að gefa sig fram til starfa fyrir Vinstri græn í Reykjavík. Sem er einstaklega spennandi nú þegar kosningaár er framundan.

Það er best gert með því að hafa samband við VGR og kjörnefnd sem í sitja Ragnar Auðun fráfarandi formaður og Gerður Gestsdóttir, stjórnarmaður.

vgr@vgr.is

ragnar@vinstri.is

gestsdottir@gmail.com

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search