Search
Close this search box.

Stór­aukinn stuðningur við ungt fólk í við­kvæmri stöðu

Deildu 

Lífið getur verið flókið og það getur stundum verið erfitt að fóta sig, sérstaklega meðan við erum ung. Við getum auðveldlega hrasað á þessari vegferð sem lífið er. Við sem samfélag verðum að aðstoða ungt fólk aftur á fætur sem lendir í viðkvæmri stöðu, til dæmis vegna andlegra veikinda, og eru ekki virkir þátttakendur í samfélaginu. Það þarf að bjóða upp á úrræði sem hjálpa þeim að komast aftur af stað.

Fyrirbyggjum ótímabært brotthvarf af vinnumarkaði

Það var einkar ánægjulegt að undirrita í vikunni, ásamt fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, Vinnumálastofnunar og VIRK starfsendurhæfingarsjóðs, samkomulag um stóraukinn stuðning við ungt fólk í viðkvæmri stöðu. Markmiðið með samkomulaginu er að fyrirbyggja ótímabært brotthvarf ungs fólks með geðraskanir af vinnumarkaði, auk þess að auka samfélagslega virkni ungmenna sem eru ekki í vinnu, námi eða starfsþjálfun. Öll viljum við hafa tilgang og hlutverk í daglegu lífi og vinnan er stór partur af því að tilheyra stærri heild. Ég legg áherslu á í störfum mínum, að við séum eitt samfélag þar sem við eigum öll greiðan aðgang burtséð frá tímabundnum eða langvarandi hindrunum.

Endurhæfing sem skilar árangri

Við ætlum að verja meira en 450 milljónum króna til þessa verkefnis yfir þriggja ára tímabil. Notuð verður aðferðafræði sem byggir á einstaklingsmiðaðri ráðgjöf til að finna störf á almennum vinnumarkaði og styðja við fólk eftir að það fær vinnu. Aðferðin heitir á ensku Individual placement and support en það er gagnreynd starfsendurhæfing sem skilað hefur framúrskarandi árangri hér á landi sem og annars staðar á Norðurlöndunum. Grunnhugmyndin er sú að hægt sé að finna störf fyrir öll þau sem vilja vinna óháð hindrunum, svo sem af geðrænum eða félagslegum toga.

Við erum öll með

Samkvæmt samkomulaginu munu Vinnumálastofnun og VIRK auka þjónustu sína sérstaklega með það að markmiði að fjölga þeim sem geti orðið virk á vinnumarkaði. Sérstök áhersla verður á þjónustu við unga einstaklinga sem glíma við margvíslegar geðrænar áskoranir. Vinnumálastofnun mun meðal annars ráða tíu ráðgjafa til að aðstoða ungt fólk við að fá störf. VIRK mun í þessu samstarfi efla enn frekar þjónustu sína á þessu sviði með fjölgun ráðgjafa, þar á meðal fyrir einstaklinga sem ekki hafa verið í starfsendurhæfingu hjá VIRK hingað til. Samtök atvinnulífsins munu skuldbinda sig til þess að liðsinna VIRK og Vinnumálastofnun við að finna störf fyrir ungt fólk og er ákaflega ánægjulegt að geta haft samstarfið svona sterkt og breitt.

Þjónusta ekki þröskuldar

Verkefnið er hluti af heildarendurskoðun á málefnum örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem ég hef unnið að á kjörtímabilinu með það að markmiði að bæta lífskjör og lífsgæði fólks með mismikla starfsorku. Við gerum það með nýrri hugsun þar sem fólk mætir þjónustu en ekki þröskuldum, og þjónustan miðar að notandanum og eykur möguleika fólks til virkni, menntunar og atvinnuþátttöku á eigin forsendum. Þetta verkefni er hluti af þeirri vegferð en þegar höfum við hækkað frítekjumark atvinnutekna öryrkja- og endurhæfingalífeyrisþega sem og lengt í tímabilinu sem fólk hefur til endurhæfingar.

Framundan eru svo enn frekari breytingar sem ég hlakka til að kynna og hrinda í framkvæmd á komandi misserum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search