Search
Close this search box.

Strand­veiðar festar í sessi með auknum afla­heimildum

Deildu 

Við þurfum að styrkja stöðu sjávarbyggðanna, tækifæri fólks til að leggja fyrir sig vistvænar krókaveiðar á grunnslóð í atvinnuskyni. Nýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar, sjávarauðlindina. Að sú leið sé öllum opin, ekki síst í þágu smærri byggðanna sem hafa á undanförnum árum verið rúnar aflaheimildum sínum og lífsbjörg kynslóða, á sífellt færri hendur á færri stöðum.

Kvótakerfi án byggðafestu, þar sem menn hafa komist upp með að höndla með veiðiheimildir sem eign þeirra væri og án tillits til hagsmuna og réttinda einstakra byggðarlaga og samfélags fólks sem hefur í kynslóðir byggt afkomu sína á því að sækja sjóinn og vinna úr og nýta það sem hafið gefur.

Í þessari viku mælti ég fyrir tillögu til þingsályktunar um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins. Einu af forgangsmálum þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns-framboðs. Tillagan byggir á sjávarútvegsstefnu hreyfingarinnar og felur í sér að stækka í áföngum félagslegan hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins með það fyrir augum að hlutdeild hans verði 8,3% af heildarafla í stað 5,3% í dag. Sömuleiðis er lagt til að endurskoða hlutverk mismunandi aðgerða innan kerfisins og skiptingu aflamagns á milli þeirra. 25 júní 2009.

Félagslegar veiðar skipta sköpum fyrir byggðafestu á Íslandi. Það voru því mikilvæg og farsæl tímamót 25. júní 2009, þegar þáverandi Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason undirritaði reglugerð um strandveiðar. Strandveiðarnar opnuðu á takmarkaðar veiðar þeirra sem ekki eru handhafar aflaheimilda. Veiðarnar hafa verið lyftisteinn fyrir atvinnulíf í mörgum smærri byggðum landsins og á svæðum sem urðu illa úti vegna framsals aflaheimilda og samþjöppunar í sjávarútvegi. Og það á við um marga anga hins félagslega kerfis sem glætt hafa lífi hafnir sem áður stóðu tómar og þar sem sjávarútvegur var á undanhaldi. Það er grundvallaratriði að félagslegar veiðar nýtist sem jöfnunartæki og liður í því er að treysta byggðajafnrétti og styrkja stöðu og rétt sjávarbyggðanna með réttlátari nýtingu sjávarauðlindanna um land allt.

Tækifærin til uppbyggingar í kringum félagslegar veiðar eru ærin og má benda á að strandveiðar skipta nú sköpum fyrir fjölda fjölskyldna vítt og breytt um landið en 700 sjálfstæðar útgerðir hafa afkomu sína af handfæraveiðum, að ótöldum afleiddum störfum fiskverkanda, verkafólks og þjónustuaðila sem njóta góðs af þessari ráðstöfun. Það er stefna okkar í VG að nýta félagslegar veiðar til réttlátrar uppbyggingar atvinnutækifæra í sjávarbyggðunum hringinn í kringum landið, skapa tækifæri fyrir útgerðir sem ekki eru handhafar aflamarks og stuðla að umhverfisvænum veiðum.

Ástæða er til að endurskoða úthlutun og meðhöndlun aðgerða innan kerfisins með tilliti til þess hvernig þær veiðiheimildir nýtist sem best smærri byggðarlögum sem þær eiga að þjóna og færa stærri hluta þeirra til smærri útgerða og inn í strandveiðikerfið. Þá þarf að koma í veg fyrir að stór hluti þeirra endi hjá stærstu útgerðarfélögum landsins sem nú þegar halda á stærstum hluta allra veiðiheimilda við Íslandsstrendur.

Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search