Search
Close this search box.

Stytting náms til stúdentsprófs

Deildu 

Á síðasta ári var mikið rætt um eflingu framhaldsskólans með það að markmiði að auka gæði og fjölbreytni náms og auka farsæld barna og ungmenna. Þá átti að efla framhaldsskólana með sameiningu ákveðinna skóla, þær tillögur vöktu hörð viðbrögð í samfélaginu og fór svo að mennta- og barnamálaráðherra setti fyrirætlanir sínar á ís.

Þó er önnur breyting sem varð á framhaldsskólakerfinu fyrir tæpum áratug. Stytting námstíma til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú. Enn virðast vera ákveðnar efasemdir um framkvæmd og gagnsemi þess úti í samfélaginu. Í skýrslu mennta- og menningarmálaráðherra frá árinu 2020 sem unnin var að beiðni Alþingis um árangur og áhrif styttingu á námstíma til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú kom fram að þá stæði til að setja af stað vinnu til fimm ára sem miðaði að því að leggja samræmt mat á það hversu vel undirbúnir nemendur koma til háskóla með því að fylgjast með þróun námsárangurs. Í ályktun Landssamtaka íslenskra stúdenta og Sambands íslenskra framhaldsskólanema frá því í mars í fyrra er það áréttað að ekkert hafi gerst í þessu máli og krafa gerð á mennta- og barnamálaráðherra að lagt verði mat á áhrif þess að námstími til stúdentsprófs hafi verið styttur.

Áhyggjur hafa vaknað af lakari námsárangri, verr undirbúnum nemendum í háskólanámi og aukinni vanlíðan ungmenna. Ýmsar spurningar eru á reiki eins og hvort framhaldsskólinn sé orðinn einsleitari með minni möguleikum í vali og minni tíma fyrir félagsþroska? Er aukin vanlíðan meðal ungmenna og þá sérstaklega stúlkna? Er streita að aukast? Og ef umrædd stytting hafi verið gerð til þess að standast alþjóðlegan samanburð og samkeppni líkt og kom fram í hvítbók um umbætur í menntun frá 2014, af hverju var skólaárið þá ekki lengt til samræmis við það sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum til þess að komast til móts við styttinguna? Þessar áhyggjur heyrast víða, þeim ber að taka alvarlega og við þurfum að fá svör við þessum spurningum og fleirum. Þess vegna hef ég lagt fram fyrirspurn til mennta- og barnamálaráðherra sem miðar að því að fá skýrari sýn á áhrif styttingar námstíma.

Það má staldra við, meta og endurskoða ákvarðanir sem hafa verið teknar. Við erum og höfum verið að ganga í gegnum stórar tæknibreytingar og samfélagslegar áskoranir eru miklar. Við þurfum góða menntun á öllum skólastigum. Ungmennin okkar þurfa tíma.

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, ritari og varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og bæjarfulltrúi á Akureyri

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search