Search
Close this search box.

Sunna Valgerðardóttir hefur störf hjá þingflokki VG

Deildu 

Sunna Valgerðardóttir, frétta- og dagskrárgerðarkona á RÚV, hefur verið ráðin til þingflokks Vinstri grænna. Sunna hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlum hvar hún hefur starfað undanfarin 15 ár og sérhæft sig í pólitískum fréttum, þar sem hennar áhugi liggur. Hún hefur starfað lengst af hjá RÚV og sinnt þar ýmsum hlutverkum, meðal annars sem fréttamaður, vaktstjóri, svæðisstjóri og nú síðast umsjónarkona fréttaþáttanna Þetta helst og Vikulokanna. Sunna var líka blaðamaður á Fréttablaðinu, Kjarnanum og fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem hún sá um fréttaskýringaþáttinn Kompás. Hún hefur tvívegis unnið til Blaðamannaverðlauna fyrir störf sín, árin 2012 og 2022.
„Það eru ótrúlega spennandi tímar fram undan í pólitíkinni og ég hlakka til að takast á við þá hinum megin borðsins. Blaðamennskunni fylgja þau forréttindi að geta bent á það sem betur má fara og látið svo aðra um að laga. Það er ekki auðvelt að segja skilið við þann dýrmæta skóla sem hefur kennt mér svo margt, en breytingar eru af hinu góða og þessi er tímabær.”

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search