Katrín Jakobsdóttir, formaður og Bjarkey Gunnarsdóttir, oddviti VG í Norðausturkjördæmi ræða stóru málin á tveimur opnum fundum í Listasafninu á Akureyri á sunnudaginn 29 ágúst. Fyrri fundurinn er um menningu. Þar fara þær yfir áherslur Vinstri-hreyfingarinnar græns framboðs í menningarmálum og hlusta á sjónarmið fundargesta.
15:30 Opinn fundur um menningarmál
Seinni fundurinn er um málefni ungs fólks og hefst hann klukkan 17.00
Katrín og Bjarkey fara þar yfir áherslur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í húsnæðismálum, menntamálum og öðru því sem snertir beint hagsmuni ungs fólks og hlusta eftir sjónarmiðum fundargesta
Allra sóttvarna verður gætt í hvívetna, grímuskylda er á fundinum og gætt verður fjarlægðartakmarkana