PO
EN

Svandís og þríeykið taka á móti bóluefni í dag.

Deildu 

 Mynd: EPASvandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, ásamt þríeykinu og ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu taka á móti Pfizer-bóluefninu í vöruskemmu fyrirtækisins Distica klukkan hálf ellefu í dag. Ráðgert er að tíu þúsund skammtar af bóluefninu komi til landsins í fyrstu sendingu og að hafist verið handa við að bólusetja á morgun, þriðjudag.

Bóluefnið kemur frá dreifingarmiðstöð Pfizer í Belgíu en flogið er með það frá Amsterdam í Hollandi.  Gert er ráð fyrir að vélin með bóluefninu lendi milli 9 og 10 á Keflavíkurflugvelli.

Flókið er að flytja bóluefnið milli landa þar sem það þarf að geymast við mikið frost; -60 til -90 gráður.  „Distica tekur við efninu  og þá þarf að athuga hvernig hitastigið var í flutningunum og sjá hvort að allir pappírar og gögn séu með sendingunni. Það er síðan í höndum Pfizer að leggja mat á flutninginn og losa sendinguna í notkun á Íslandi,“ sagði Júlía Rós Atladóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, í samtali við fréttastofu í gærkvöld.

Landspítalinn stefnir á að hefja bólusetningu hjá sínum starfsmönnum á morgun. 770 verður boðin bólusetning í fyrstu umferð og er reiknað með að ljúka bólusetningu hópsins þann 30. desember.  

Þetta er starfsfólk á bráðamóttöku í Fossvogi, bráðamóttöku barna, gjörgæsludeilda og COVID-19 göngudeildar.  Þá verður starfsfólki sem tók aukavaktir á þessum deildum í þriðju bylgjunni einnig boðið að fara í bólusetningu.  Í fyrsta forgangshópi eru einnig íbúar á hjúkrunarheimilum.

Bóluefnið verður gefið í tveimur skömmtum, 0,3 ml hvor, með að minnsta kosti 21 dags millibili. Því er sprautað í vöðva, yfirleitt á upphandlegg. Fyrst þarf að láta það þiðna, helst í þrjár klukkustundir og það er síðan þynnt með natríumklóríði.

Mjög algengar aukaverkanir eru verkur og bólga á stungustað, þreyta, höfuðverkur, vöðvaverkir, liðverkir, kuldahrollur og hiti. Algengar aukaverkanir eru roði á stungustað og ógleði. Fram kemur í fylgiseðli með bóluefninu að þessar aukaverkanir séu venjulega vægar eða miðlungsmiklar og gangi til baka fáum dögum eftir bólusetningu.

Í fyrstu sendingu koma tíu þúsund skammtar en eftir það þrjú þúsund skammtar á viku hverri fram í mars. Ísland fær samtals 170 þúsund skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech sem eiga að duga til að bólusetja 85 þúsund Íslendinga. 

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search