EN
PO
Search
Close this search box.

Takk Steinunn

Deildu 

Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður okkar hefur ákveðið að gefa ekki aftur kost á sér í forystu í komandi alþingiskosningum. Steinunn Þóra hefur setið á þingi fyrir VG síðan 2014 og barist ötullega að málefnum VG bæði í ríkisstjórn en einnig í stjórnarandstöðu. Við viljum þakka Steinunni fyrir sína ómetanlegu baráttu í forystusveit hreyfingarinnar og hlökkum til samstarfsins í grasrót hennar! Hér að neðan er hægt að lesa tilkynningu Steinunnar.

Fyrir tíu árum urðu talsverðar breytingar á lífi mínu þegar ég varð þingmaður fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Ég hafði á undanliðnum misserum og árum öðru hverju tekið sæti sem varamaður, en var nú komin í þá stöðu að helga mig landsmálunum. Við tóku skemmtilegir og gefandi tímar, fyrst í stjórnarandstöðu og svo stjórn. Stjórnmálastarf er að mínu mati mikilvægt og er almennt skemmtilegt og andlega auðgandi en auðvitað líka krefjandi. Það gefur færi á að kynnast flestum öngum samfélagsins en fyrst og fremst þó alls konar fólki. Fyrir þessa reynslu verð ég að eilífu þakklát. Ég lít líka stolt um öxl þegar kemur að öllum þeim málum sem mér hefur tekist að þoka áfram, bæta og í félagi við aðra fá samþykkt – en í öðrum tilvikum stöðva eða í það minnsta sníða verstu gallana af.

Eftir talsverða umhugsun hef ég komist að þeirri niðurstöðu að láta gott heita og bjóða mig ekki fram til forystu í komandi kosningum. Innan hreyfingar er nóg af góðu fólki sem mun taka við keflinu – sem er mikilvægt, því erindi Vinstri grænna er brýnt nú sem endranær. Það þarf áfram skýra rödd kvenfrelsis, jöfnuðar, náttúruverndar og friðar.

Ég hlakka til að taka þátt í komandi kosningabaráttu sem almennur félagi og er sannfærð um að við munum ná góðum árangri í kosningunum. Félögum mínum í þingflokki VG þakka ég frábært samstarf í gegnum tíðina – en munið, þið eruð nú ekki alveg laus við mig enn.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search