Search
Close this search box.

Það dreymir enga um að búa á stofnun

Deildu 

Á föstudaginn var haldið Heilbrigðisþing. Þingið í ár fjallaði um framtíðarsýn í þjónustu við eldra fólk. Á þinginu kynnti Halldór S. Guðmundsson skýrslu sína „Virðing og reisn – Samþætt heilbrigðis- og félagsþjónusta fyrir eldra fólk.“ Skýrslan hefur legið frammi í drögum á samráðsgátt stjórnvalda síðan í júní síðastliðnum. Skýrslan er vel unnin og stórgóð og full ástæða til að hvetja fólk til að lesa hana.

Þingið vakti töluverða athygli og er það vel. Þeim sem ná háum aldri fjölgar, hópurinn verður fjölbreyttari og væntingar hans til þjónustu breytast. „Áhyggjulaust ævikvöld“ og „setjast í helgan stein“ verða ekkert endilega aðalmarkmiðin, heldur þátttaka í samfélaginu á eigin forsendum og eftir atvikum stuðningur samfélagsins við það.

Of stofnanamiðuð

Á Íslandi höfum við alltof lengi verið stofnanamiðuð þegar kemur að þjónustu við eldra fólk. Sennilega liggur hluti vandans í því að við höfum tilhneigingu til að byggja úrræði framtíðarinnar á væntingum fortíðar. Í stað þess að miða þjónustuna fram í tímann við það sem gætu verið þarfir barnabarnanna okkar höfum við horft meira til þess að halda áfram að byggja upp eins og foreldrar okkar hefðu viljað.

Við höfum byggt upp hjúkrunarheimili sem aðallausnina, þrátt fyrir að allt bendi til þess að ef fólk hefði val myndi það velja aðra kosti. Halldór bendir á þetta í skýrslu sinni og hvernig við getum bætt þjónustu við eldra fólk með stóraukningu í heimaþjónustu. Einkum í sveigjanlegri dagdvöl og dagþjálfun, en einnig í aukinni þjónustu heim eins og heilbrigðisþjónustu og stuðningi við daglegt líf á forsendum notandans. Hann bendir á að hin Norðurlöndin hafa þegar farið þessa leið í mismiklum mæli. Ef við setjum okkur svipuð viðmið gætum við gert enn fleirum kleift að njóta þjónustu heima.

Með aukinni heimaþjónustu minnkar þrýstingur á úrræði eins og hjúkrunarheimili, og þannig mun svigrúm til að bæta þjónustu þeirra aukast þar sem fjármagnið fer ekki að stærstum hluta í dýrustu úrræðin, heldur í þá þjónustu sem fólk vill. Það dreymir nefnilega enga um að flytja á stofnun, langflest viljum við búa heima hjá okkur á okkar forsendum.

Höfundur er öldrunarlæknir, þingmaður og skipar þriðja sæti á lista VG í Suðvesturkjördæmi.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search