Svandís Svavarsdóttir er ein í framboði til formanns, en framboðsfrestur rann út þegar landsfundi var frestað klukkan rúmlega 22, föstudagskvöldið 4. október. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fráfarandi formaður, og Jódís Skúladóttir keppast um sæti varaformanns.
Hólmfríður Jennýjar- Árnadóttir er ein í framboði til ritara. Steinar Harðarson sömuleiðis í stöðu gjaldkera.
Þau sem bjóða sig fram sem meðstjórnendur eru sextán talsins, en alls eru sjö aðalmenn og fjórir varamenn sem ná kjöri. Frambjóðendur til stjórnar eru: Aldey Unnar Traustadóttir, Anna Þorsteinsdóttir, Árni Þór Sigurðsson, Berglind Häsler, Einar Bergmundur Þorgerðarson Bóasarson, Elín Björk Jónasdóttir, Fjölnir Sæmundsson, Gísli Garðarsson, Guðný Hildur Magnúsdóttir, Hólmfríður Sigþórsdóttir, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Jósúa Gabríel Davíðsson, Klara Mist Olsen Pálsdóttir, Maarit Kaipainen, Ólafur Kjartansson og Pétur Heimisson.
Kosning fer fram á laugardeginum 5. október klukkan 15:30 og verða úrslit tilkynnt jafn óðum.