Search
Close this search box.

Þau gefa kost á sér í NV-kjördæmi

Deildu 

Átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin í Norðvesturkjördæmi, í rafrænu forvali sem haldið verður 23. – 25. apríl 2021.  

Bjarni Jónsson, fiskifræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi, 1. sæti
Lárus Ástmar Hannesson, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi, 3.-5. sæti
Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður, 1. sæti
María Hildur Maack, umhverfisstjóri, 3.-5. sæti
Nanný Arna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, 3.-5. sæti
Sigríður Gísladóttir, dýralæknir, 2.-4. sæti
Þóra Magnea Magnúsdóttir, kennari, 2.-3. sæti
Þóra Margrét Lúthersdóttir, sauðfjár- og skógarbóndi, 2.-3. sæti

Kosning hefst á miðnætti 23. apríl og stendur til kl. 17.00 þann 25. apríl. Kosið verður um fimm efstu sæti á listanum, þar af bindandi í efstu þrjú en í samræmi við forvalsreglur VG. Atkvæðisbær í forvalinu eru öll þau sem skráð eru í hreyfinguna í kjördæminu 10 dögum fyrir kjörfund.

Tveir rafrænir framboðsfundir verða haldnir og opnir öllum,

10. apríl kl. 12.00  
19. apríl kl. 20.00. 

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, stýrir fundunum. Hlekk á fundina verður hægt að nálgast á vg.is og á samfélagsmiðlum. 

Allar nánari upplýsingar veitir,
Bjarki Þór Grönfeldt
formaður kjörstjórnar VG í Norðvesturkjördæmi
nordvestur@vg.is

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search